Vinastræti 1-3 áður Vörðuvegur 1 - 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
12. (776). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að við afgreiðslu byggingarleyfis fyrir Urriðaholtsskóla verði fallið frá grenndarkynningu vegna stækkunar byggingarreits, hækkunar hæðarkóta stigahúss um 50 cm og uppbrots á norðurhlið hússins þar sem um óveruleg frávik er að ræða, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar Urriðaholtsskóla við Vörðuveg 1-3.
María Grétarsdóttir situr hjá.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
03
33. (1701). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að fallið verði frá grenndarkynningu vegna stækkunar byggingarreits, heimili hæðarkóta stigahúss 12,5m eða 0,5 ofar en skilmálar segja til um og heimili misstóra glugga og útdregna sem uppbrot á norðurhlið hússins þar sem um óverulegt frávik er að ræða sem skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýni, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar Urriðaholtsskóla við Vörðuveg 1-3.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
04
47. fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi vegna jarðvinnu fyrir byggingu nýs skóla í Urriðaholti við Vörðuveg 1-3.