46. fundur
46. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
02.12.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
01
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi framlög vegna sameiningu sveitarfélaganna Garðabæjar og Sveitarfélagsins Álftaness, dags. 19.11.14.
Lagt fram.
02
Bréf skátafélagsins Svana varðandi húsnæðismál félagsins, dags. 21.11.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til skoðunar hjá bæjarstjóra og rýnihóps um skóla- og íþróttasvæði á Álftanesi.
03
Bréf Urriðalands ehf. og Urriðaholts ehf varðandi jarðvegsframkvæmdir og landmótun lóða við Mosagötu og í 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts, dags. 18.11.14.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að hafnar verði jarðvegsframkvæmdir og landmótun á lóðum við Mosaveg, Holtsveg og Lynggötu og vísar í því sambandi til 2. mgr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
04
Skerðing skólagjalda vegna verkfalls kennara í félagi tónlistarkennara, dags. 27.11.14.
Lagt fram.
05
Skýrsla varðandi Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árin 2014-2018.
Lagt fram.
06
Bréf íþróttafulltrúa varðandi samkomulag um framkvæmd Stjörnuhlaupsins, dags. 21.11.14.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar hefur fjallað um málið og bæjarráð samþykkir samkomulagið um framkvæmd Stjörnuhlaupsins.
07
Bréf Póst- og fjarskiptastofnunar varðandi leiðbeiningar um uppbyggingu ljósleiðaraneta og ríkisaðstoðarreglur EES, dags. 20.11.14.
Lagt fram.
08
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi málþing um þjónustu við nýja íbúa af erlendum uppruna 14.nóv 2014, dags. 27.11.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar mannréttinda- og forvarnarnefndar, fjölskylduráðs og ungmennaráðs.
09
Umsókn um byggingarleyfi - Lyngprýði 2
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna einbýlishúss á einni hæð við Lyngprýði 2.
10
Umsókn um byggingarleyfi - Hljóðvarnarveggur - Stekkjarflöt 2
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna girðingar á lóðarmörkum að Vífilsstaðavegi við Stekkjarflöt 2.
12
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 45
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um byggingarleyfi vegna 9 íbúða fjölbýlishúss við Holtsveg 45.
13
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 47
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um byggingarleyfi vegna 9 íbúða fjölbýlishúss við Holtsveg 47.
14
Bréf stjórnar Snorrasjóðs varðandi stuðning við Snorraverkefnisins, dags. 17.11.14.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.
15
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi beiðni körfuknattleiksdeildar um afnot af íþróttahúsinu við Ásgarð, dgs. 28.11.14.
Bæjarstjóra falið að leita álits samkeppniseftirlits. Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
16
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi þingsályktunartillögu um dag helgaðan fræðslu um mannréttindi barna, 397. mál, dags. 27.11.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í mannréttinda- og forvarnarnefnd.
17
Tillaga Bjartrar framtíðar vegna fjárhagsáætlunar 2015
Tillögur frá Bjartri framtíð lagðar fram. Vísað til bæjarstjórnar.
18
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir reglur um fjárhagsaðstoð og sérstakar húsaleigubætur. $line$Tillögur um gjaldskrár lagðar fram og vísað til bæjarstjórnar. $line$$line$Bæjarstjóri fór yfir breytingar á tillögum að framkvæmdum. Minnisblað um breytingar á frumvarpi til fjárhagsáætlunar lagt fram og vísað til bæjarstjórnar.