Opnun tilboða í gatnaframkvæmdir í 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
15 (1683). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í gatnagerð í 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts.$line$$line$ÍAV hf. kr. 268.395.127$line$Ístak Íslands ehf. kr. 299.325.766$line$Hálsafell ehf. kr. 231.649.100$line$$line$$line$$line$Kostnaðaráætlun kr. 299.937.523$line$$line$$line$$line$Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Hálsafells ehf.,og felur bæjarverkfræðingi að leita samninga á grundvelli tilboðsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
4 (1672). fundur
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að hafnar verði jarðvegsframkvæmdir og landmótun á lóðum á deiliskipulagssvæði 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts og vísar í því sambandi til ákvæðis 3. mgr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 þar sem fram kemur heimild til að kanna jarðveg á framkvæmdasvæði án þess að byggingarleyfi hafi verið gefið út.
Bæjarráð Garðabæjar
03
46. fundur
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að hafnar verði jarðvegsframkvæmdir og landmótun á lóðum við Mosaveg, Holtsveg og Lynggötu og vísar í því sambandi til 2. mgr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012.