15 (1683). fundur
15 (1683). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
21.04.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Opnun tilboða í gatnaframkvæmdir í 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts
Eftirfarandi tilboð bárust í gatnagerð í 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts.$line$$line$ÍAV hf. kr. 268.395.127$line$Ístak Íslands ehf. kr. 299.325.766$line$Hálsafell ehf. kr. 231.649.100$line$$line$$line$$line$Kostnaðaráætlun kr. 299.937.523$line$$line$$line$$line$Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Hálsafells ehf.,og felur bæjarverkfræðingi að leita samninga á grundvelli tilboðsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
02
Ársskýrsla Bókasafns Garðabæjar 2014
03
Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um afgreiðslu framlags vegna sameiningar sveitarfélaga, dags. 08.04.15.
Lagt fram.
04
Umsókn um byggingarleyfi - Miðhraun 20
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um endurnýjun á byggingarleyfi vegna nýbyggingar atvinnuhúsnæðis á lóðinni við Miðhraun 20.
Fylgiskjöl
05
Umsókn um byggingarleyfi - Haukanes 25
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna viðbyggingar við einbýlishúsið að Hauknesi 25.
Fylgiskjöl
06
Umsókn um byggingarleyfi Móaflöt 8
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna breytinga á tengibyggingu o.fl. við einbýlishúsið að Móaflöt 8.
Fylgiskjöl
07
Umsókn um byggingarleyfi Sunnuflöt 3
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við einbýlishúsið að Sunnuflöt 3.
Fylgiskjöl
08
Umsóknir í þróunarsjóð leikskóla 2015 - fyrri úthlutun
Alls bárust 15 umsóknir um styrki úr þróunarsjóði grunnskóla. $line$$line$Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 6.168.00 úr sjóðnum til 13 verkefna.$line$$line$Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um Þróunarsjóð leikskóla.
09
Viðauki við samning Garðabæjar og Byggingarfélags Gylfa og Gunnars um lóðina við Strikið 1
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Byggingarfélagið Gylfa og Gunnars um lóðina við Strikið 1.
10
Samantekt fræðslu- og menningarsviðs á niðurstöðum samræmdra prófa 2014
Lögð fram samantekt fræðslu- og menningarsviðs um niðurstöður og þátttöku í samræmdum prófum í íslensku og stærðfræði í 4., 7. og 10. bekk.
Fylgiskjöl
11
Beiðni um umsögn vegna umsóknar um leyfi til heimagistingar að Skrúðási 12.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt en leggur til að leyfið verði veitt til eins árs til reynslu.
Fylgiskjöl
12
Bréf Minjastofnunar Íslands um úthlutun styrks vegna viðhalds og málunar á Bjarnastöðum, dags. 08.04.15.
Lagt fram bréf Minjastofnunar Íslands um styrk að fjárhæð kr. 700.000 til málunar og viðhalds Bjarnastaða á Álftanesi.
13
Bréf Minjastofnunar Íslands um úthlutun styrks til vinna að húsakönnun í Búða- og Lundhverfi, dags. 08.04.15.
Lagt fram bréf Minjastofnunar Íslands um styrk að fjárhæð kr. 400.000 til að framkvæma húsakönnun í Búða- og Lundahverfi.
14
Ársreikningur Garðabæjar 2014 - skýrslur endurskoðenda
Lagðar fram eftirfarandi skýrslur endurskoðenda til bæjarstjóra.$line$$line$Skýrsla vegna skoðunar á innri eftirliti og fjárhagskerfi árið 2014$line$Skýrsla vegna skoðunar á upplýsingakerfum árið 2014$line$Stjórnsýsluendurskoðun árið 2014
15
Samningur við Skógræktarfélag Reykjavíkur um rekstrarstyrk vegna Heiðmerkur
Í samningnum er gert ráð fyrir árlegu framlagi Garðabæjar til Skógræktarfélagsins að fjarhæð 5.000.000 árin 2015 til 2018.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.