Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna athugasemda Skipulagsstofnunar við samþykkt tillögu að deiliskipulagi fyrir Ásbúð og Holtsbúð.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
1. fundur
Lagt fram erindi frá Skipualgsstofnun dags 10.nóvember 2016 þar sem gerðar eru athugasemdir við útfærslu samþykktrar tillögu. Komið hefur verið til móts við athugasemdirnar með lagfæringum á tillögunni. Afla skal umsögn Minjastofnunar og senda stofnuninni þá húsakönnun sem unnin hefur verið.
Bæjarráð Garðabæjar
03
36. (1753). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga að nýju deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
12. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Búða, Ásbúð/Holtsbúð að lokinni kynningu sem fór fram 13.júní til 9.september. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr. 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
8. (791). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að afturkalla ákvörðun um samþykkt á deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar frá 6. nóvember 2015 og auglýsa tillögu að sama skipulagi að nýju samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. en með breytingu á aðkomu að lóðinni við Holtsbúð 87 og nýrri dælustöð fyrir OR í hljóðmön við Hnoðraholtsbraut.
Bæjarráð Garðabæjar
06
15. (1732). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að afturkalla ákvörðun um samþykkt á deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar frá 6. nóvember 2015 og auglýsa að nýju samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. tillögu að sama skipulagi með breytingu á aðkomu að lóðinni við Holtsbúð 87 og nýrri dælustöð fyrir OR í hljóðmön við Hnoðraholtsbraut.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
8. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar.
Þær breytingar hafa verið gerðar á auglýstri og samþykktri tillögu að aðkoma að lóðinni Holtsbúð 87 verður frá Karlabraut og frá Holtsbúð. Nú verður að auki gert ráð fyrir dælustöð OR inni í hljóðmön við Hnoðraholtsbraut.
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn afturkalli fyrri samþykkt á tillögu að deiliskipulagi Búða frá 6.nóvember 2015.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framlagðir tillögu verði vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr. skipulagslaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
16. (780). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Ásbúð og Holtsbúð með breytingum þar sem tekið er tillit til innsendra athugasemda sem hafa verið yfirfarnar samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt tillaga skal send til málsmeðferðar Skipulagsstofnunar og umsögn send þeim sem gerðu athugasemdir við tillöguna, sbr. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
09
41. (1709). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Ásbúð og Holtsbúð með breytingum þar sem tekið er tillit til innsendra athugasemda sem hafa verið yfirfarnar samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt tillaga skal send til málsmeðferðar Skipulagsstofnunar og umsögn send þeim sem gerðu athugasemdir við tillöguna, sbr. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
14. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Ásbúðar-Holtsbúðar sem var í kynningu frá 7.apríl til 19.maí. Lagt fram minnisblað verkfræðistofunnar Eflu um tillögu að breytingu á deiliskipulags tillögunni. Sú breytingartillaga gerir ráð fyrir því að aðkoma að Holtsbúð 87 (fyrrum hjúkrunarheimili) frá Karlabraut færist neðar og að opið svæði milli Holtsbúðar og húsa í Lundum skerðist ekki. Breytingartillagan leitast við að koma til móts við athugasemdir.Niðurstaða Eflu er sú að færsla aðkomu hafi ekki neikvæð áhrif. Skipulagsnefnd leggur því til að aðkomunni verði breytt og verði útfærð eins og lagt er til.
Í athugasemd er því haldið fram að lóðin Holtsbúð 87 geti ekki verið skilgreind fyrir samfélagsþjónustu þar sem að landnotkun samkvæmt aðalskipulagi sé íbúðarsvæði. Skipulagsnefnd lítur svo á umrædda skilgreiningu fyrir samfélagsþjónustu að þar verði eingöngu um nærþjónustu að ræða sem geti fallið að íbúðarbyggð og valdi ekki óþægindum vegna lyktar, hávaða eða óþrifnaðar né dragi að sér óeðlilega mikla umferð. Breyting á aðkomu að byggingunni sem verður nú frá Karlabraut í stað Holtsbúðar miðar að því að draga úr neikvæðum áhrifum umferðar sem hlýst af starfseminni á íbúðarbyggð. Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi ákvæði bætist við í kafla 3 í skilmálum þar sem fjallað er um lóðina: „Á lóðinni verði eingöngu starfsemi undir samfélagsþjónustu sem getur samræmst íbúðabyggð og valdi ekki óþægindum vegna lyktar, hávaða eða óþrifnaðar eða skapi óeðliega mikla umferð um húsagötur.“
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna með ofangreindum breytingum í samræmivið 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
6. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar að lokinni kynningu. Tillagan var í kynningu frá 7.apríl til 19.maí. 3 athugasemdabréf hafa borist undirrituð af 71 einstaklingi. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
12
15 (1683). fundur
Lagt fram bréf Minjastofnunar Íslands um styrk að fjárhæð kr. 400.000 til að framkvæma húsakönnun í Búða- og Lundahverfi.
Bæjarstjórn Garðabæjar
13
2. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.
Bæjarráð Garðabæjar
14
3 (1671). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
15
1. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Búða, Ásbúðar og Holtsbúðar að lokinni forkynningu.$line$Skipulagsnefnd leggur áherslu á að útfærsla tengingar aðkomu að þjónustubyggingu við Holtsbúð við Karlabraut tryggi öryggi gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda. Hugað verði að öryggi þverunar göngustígs yfir Karlabraut.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
16
19. fundur
Tillaga að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar lögð fram að lokinni forkynningu. Ábendingar sem borist hafa lagðar fram.$line$Lagt fram minnisblað Eflu um hugmynd að hringtorgi við aðkomu að Holtsbúð á móts við gatnamót við Hæðarbyggð.$line$Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissvið.
Bæjarráð Garðabæjar
17
42. fundur
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 1. júlí sl. tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á deiliskipulagi fyrir Ásbúð og Holtsbúð samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010..$line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá gerð sérstakrar lýsingar samkvæmt 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda liggja allar meginforsendur skipulagsins fyrir í gildandi aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
18
16. fundur
Einar Ingimarsson arkitekt kynnti tillögu að deiliskipulag Holtsbúðar og Ásbúðar þar sem m.a. er gert ráð fyrir nýrri aðkomu að Holtsbúð 87 (hjúkrunarheimili) frá Karlabraut.$line$Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 4.mgr. 40.gr. Skipulagslaga. Boða skal til kynningarfundar með íbúum á forkynningartíma.$line$Í samræmi við 2.mgr. 39.gr. Skipulagslaga er fallið frá gerð lýsingar þar sem að allar megin forsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi.
Bæjarráð Garðabæjar
19
25. fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um kynningu skipulagsins samkvæmt 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
20
10. fundur
Lögð fram drög að tillögu að deiliskipulagi Búða, Ásbúðar og Holtsbúðar sem Einar Ingimarsson hefur unnið að í samráði við skipulagsstjóra. Lögð fram skýrsla umferðarverkfræðings hjá Eflu um aðkomu að þjónustuhúsinu Holtsbúð frá Karlabraut. Niðurstaða umferðarskoðunar er sú að tengin B sé æskilegri. Skipulagsnefnd beinir því til tækni-og umhverfissviðs að útfæra tengingu B þar sem fullt tillit verði tekið til öryggissjónarmiða.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögu til forkynningar í samræmi við 4.mgr. 40.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 með ofangreindri breytingu. Boða skal til kynningarfundar með íbúum á forkynningartíma.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
21
9. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar í Búðum. Tillaga hefur það að markmiði að festa í sessi þau ákvæði sem miðað var við í uppbyggingu hverfisins og laga skilmála að kröfum núgildandi laga og reglugerða.$line$Gert er ráð fyrir breytingu á nýtingu og aðkomu þjónustubyggingarinnar Holtsbúðar. Aðkoma verði frá Karlabraut og byggingin hýsi leikskóla.$line$Skipulagsnefnd leggur til að gerð verði athugun á nýrri tengingu þjónustuhússins Holtsbúðar með tiliti til umferðaröryggis. Nefndin bendir einnig á að vinna þurfi húsakönnun vegan deiliskipulagsgerðar Ásbúðar og Holtsbúðar.