Beint í efni

10. fundur

27.06.2014
Skipulagsnefnd Garðabæjar

10. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

27.06.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Auður Hallgrímsdóttir - aðalmaður
  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1404517

01

Önnur mál.

Bæjarritari, Guðjón E. Friðriksson, kom á fund nefndar og gerði grein fyrir ýmsum málum sem varða starfssvið nefndarinnar og hvaða lög, reglugerðir og samþykktir eru til grundvallar.

Málsnúmer 1302243

02

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Lögð fram tillaga að lýsingu aðalskipulagsgerðar sem skipulagsnefnd vísaði til nýrrar skipulagsnefndar á fundi þann 15.maí sl. dagsett 14.maí 2014. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu aðalskipulagsgerðar.

Málsnúmer 1405177

03

Búðir, Ásbúð og Holtsbúð, deiliskipulag.

Lögð fram drög að tillögu að deiliskipulagi Búða, Ásbúðar og Holtsbúðar sem Einar Ingimarsson hefur unnið að í samráði við skipulagsstjóra. Lögð fram skýrsla umferðarverkfræðings hjá Eflu um aðkomu að þjónustuhúsinu Holtsbúð frá Karlabraut. Niðurstaða umferðarskoðunar er sú að tengin B sé æskilegri. Skipulagsnefnd beinir því til tækni-og umhverfissviðs að útfæra tengingu B þar sem fullt tillit verði tekið til öryggissjónarmiða.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögu til forkynningar í samræmi við 4.mgr. 40.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 með ofangreindri breytingu. Boða skal til kynningarfundar með íbúum á forkynningartíma.

Málsnúmer 1302203

04

Kirkjubrú 1, dsk

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarhúsabyggðar að Kirkjubrú 1. Lagðar fram ábendingar íbúa sem komu fram í forkynningu í vetur og ennfremur minnisblað umsækjanda um innihald ábendinga. Skipulagsnefnd beinir til tækni-og umhverfissviðs að skoða frekari útfærslumöguleika umferðartengingar við aðlilggjandi byggð.

Málsnúmer 1406017

05

Eyvindarholt 3 - landskipti

Lögð fram tillaga landeigenda Eyvindarholts 3 landnúmer 192940 um skiptingu landspildunnar sem er 2,4 ha að stærð. Spildan skiptist í tvo hluta Eyvindarholt 3 með sama landnúmer 0,95 ha að stærð og Eyvindarholt 5 sem verður 1,46 ha að stærð.$line$Skipulagsnefnd samþykkir skiptinguna í samræmi við 1.mgr. 48.gr. Skipulagslaga.

Málsnúmer 1401509

06

Lundaból, viðbygging, grenndarkynning byggingarleyfisumsóknar.

Lögð fram tillaga að stækkun leikskólans Lundarbóls að lokinni grenndarkynningu skv. 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga. 8 erindi bárust með athugasemdum undirrituð af alls 24 íbúum við Einilund,Asparlund, Hörpulund, SKógarlund og Víðilund. Athugasemdir beinast fyrst og fremst að aukinni umferð vegna stækkunar leikskólans, auknum umferðarhraða á Hofstaðabraut, stækkun bílastæða og útfærslu á þeim og að leikvellir og útivistarsvæði skerðist.$line$Íbúar við Einilund hafa sent tillögu að breytingu á bílastæðum og hefur sú tillaga verið send til skoðunar hjá verkfræðistofunni Eflu. Lagt fram minnisblað Eflu þar sem sú tillaga hefur verið skoðuð.$line$Skipulagsnefnd leggur til tillaga sé útfærð um að skerma af bílastæðið gagnavart húsum við Einilund. Leggja skal fram tillögu að landlagsmótun alls opna svæðisins með tilliti til útivistargildis og leiksvæða. Skipulagsnefnd leggur til að unnið verði mat á aukningu umferðar á Hofstaðabraut vegna stækkunar leikskólans og að leiðir til að draga úr umferðarhraða verði skoðaðar. Skipualgsnefnd leggur til að boðað verði til fundar með íbúum sem grenndarkynning nær til þar sem tillögur verði kynntar og ræddar.$line$$line$Auður Hallgrímsdóttir leggur fram eftirfarandi bókun: "Eins og réttilega er bent á í athugasemdum frá íbúum er efri lundur Garðabæjar lokað íbúðahverfi með eina innkomu í hverfið frá Karlabraut sem engan vegin þolir slíkt umferðarálag sem fylgir rekstri leikskóla með 130-135 börnum. Réttilega benda íbúar á að í hverfinu eru nú þegar tveir leikskólar sem uppfylla þörf hverfisins fyrir það aldursskeið. Einnig þarf að vera rými fyrir leiksvæði unglinga sem í dag er vel nýtt á því svæði sem annars færi undir bílaplan. Eins og íbúar segja er græna svæðið sem liggur að Lundabóli mikið notað af íbúum til leikja og samveru. Í nýrri deiliskipulagasgerð fyrir Urriðaholt eru áherslur skipulagsins frá bæjaryfirvöldum að umhverfið sé gönguvænt og góðir stígar um holtið, hönnun húsagatna sakpi vistlegt og lifandi rými og hraði bílaumferðar verði takmarkaður með ýmsum aðgerðum einng er áhersla á að Urriðahverfið einkenist af gróðri og grænum svæðum með góðum leiksvæðum við lóðir og í almenningsrými. Fulltrúi Bjartrar Framtíðar telur að eldri hverfin í Garðabæ eigi að njóta sömu framtíðarasýnar og ný hverfi sem verið er að skipuleggja."

Málsnúmer 1310283

07

Strikið 1-3, breyting á dsk Sjálands

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Sjálands sem nær til loðarinnar Strikið 1-3 að lokinni kynningu skv 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga. Kynning fór fram 14.apríl til 26.maí. Athugasemdir bárust frá stjórn Húsfélagsins að Löngulínu 2. Í erindi húsfélagsins eru gerðar athugasemdir við áhrif breytingarinnar á skuggavarp, vindafar,hljóðvist og útsýni.$line$Lagðar fram teikningar sem umsækjandi hefur látið útbúa sem sýna áhrif á skuggavarp.$line$Skipulagsnefnd beinir því til umsækjanda að lögð verði fram skoðun á áhrif breytingar á hljóðvist og vindafar. Aðrar ábendingar sem koma fram í erindi varða ekki breytinguna.

Málsnúmer 1406288

08

Urriðaholt, Norðurhluti 2 deiliskipulag

Lögð fram lýsing gerðar á nýju deiliskipulag í Urriðaholti, Norðurhluta tvo sem nær til 5 ha svæðis þar sem gert verður ráð fyrir um 200 íbúðareiningum í fjölbýli, rað og parhúsum auk nokkurra einbýlishúsa.$line$Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1.mgr. 40.greinar Skipulagslaga.

Málsnúmer 1406265

09

Holtsvegur 41 og 43, dsk breyting

Lögð fram tillaga lóðarhafa að breytingu deiliskipulags Vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðanna 41 og 43 við Holtsveg. Tillagan gerir ráð fyrir því að íbúðum verði fjölgað um eina á hverri lóð úr 9 í 10. Ástæða þess er að útfærsla þegar samþykktra teikninga fjölbýlishúsanna er með því móti að á fyrstu hæð skapast stórt rými sem ekki er þörf fyrir sem geymslurými, bílageymslurými eða tæknirými.Á síðasta ári var íbúðum fjölgað úr 8 í 9 á 9 sambærileglum fjölbýlishúsa lóðum við Holtsveg að ofanverðu m.a. á umræddum lóðum. Aðrir lóðarhafar hafa hannað húsin miðað við gildandi deiliskipulag á sambærilegum lóðum. Skipulagsnefnd telur að útfærsla íbúðar sé ekki í samræmi vi þau gæði sem stefnt sé að í hverfinu. Skipulagsnefnd hafnar erindinu. Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.