Önnur mál.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
10. fundur
Bæjarritari, Guðjón E. Friðriksson, kom á fund nefndar og gerði grein fyrir ýmsum málum sem varða starfssvið nefndarinnar og hvaða lög, reglugerðir og samþykktir eru til grundvallar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
9. fundur
Formaður Skipulagsnefndar þakkaði nefndarfólki og starfsmönnum nefndarinnar fyrir einstaklega gott samstarf á kjörtímabilinu. Sérstaklega þakkaði hann Arnbirni Vilhjálmssyni fyrir vel unnin störf og gott samstarf. Fundarmönnum þökkuðu einnig formanni og Skipulagsstjóra fyrir samstarfið. Að svo búnu sleit formaður fundi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
8. fundur
Guðmundur Gunnarsson óskaði að eftirfarandi yrðir fært til bókar:$line$Þessi fundur er minn síðasti í skipulagsnefnd, en upphaf starfs míns fyrir sveitarstjórn var í júní 1986, varamaður í hreppsnefnd og í byggingar- og skipulagsnefnd Bessastaðahrepps. Það er metnaðarfullt og verðugt verkefni að sameina tvö aðalskipulög í eitt heildrænt skipulag. Vel heppnuð sameining og góð fjárhagsstaða gefur góð fyrirheit fyrir Garðbæinga. Ég óska skipulagsnefnd velfarnaðar.$line$Skipulagsnefnd þakkar Guðmundi Gunnarssyni fyrir ánægjulegt samstarf.