Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna Holtsvegur 41 og 43, dags. 27.06.14.

Málsnúmer 1406265

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

25. fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 41 og 43.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

10. fundur

Lögð fram tillaga lóðarhafa að breytingu deiliskipulags Vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðanna 41 og 43 við Holtsveg. Tillagan gerir ráð fyrir því að íbúðum verði fjölgað um eina á hverri lóð úr 9 í 10. Ástæða þess er að útfærsla þegar samþykktra teikninga fjölbýlishúsanna er með því móti að á fyrstu hæð skapast stórt rými sem ekki er þörf fyrir sem geymslurými, bílageymslurými eða tæknirými.Á síðasta ári var íbúðum fjölgað úr 8 í 9 á 9 sambærileglum fjölbýlishúsa lóðum við Holtsveg að ofanverðu m.a. á umræddum lóðum. Aðrir lóðarhafar hafa hannað húsin miðað við gildandi deiliskipulag á sambærilegum lóðum. Skipulagsnefnd telur að útfærsla íbúðar sé ekki í samræmi vi þau gæði sem stefnt sé að í hverfinu. Skipulagsnefnd hafnar erindinu. Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.