25. fundur
25. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
01.07.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
01
Bréf Þórðar K. Pálssonar varðandi styrk vegna kvikmyndagerðarnáms, dags. 20.06.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar og afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
02
Tilboð í umsjón og eftirlit við 4. áfanga Hofsstaðaskóla, dags. 13.06.14.
Eftirfarandi tilboð eru lögð fram.$line$$line$$line$$line$Conís ehf. kr. 10.440.000$line$$line$Efla hf. kr. 14.232.439$line$$line$Detail ehf. kr. 14.607.500$line$$line$Strendingur ehf. kr. 15.047.648$line$$line$Verkís hf. kr. 16.424.200$line$$line$Hnit verkfræðistofa hf kr. 16.642.277$line$$line$VSÓ Ráðgjöf ehf. kr. 17.477.000$line$$line$$line$$line$Kostnaðaráætlun hönnuða kr. 11.070.000$line$$line$$line$$line$Conís ehf. sem er lægstbjóðandi leggur ekki fram upplýsingar um vottun gæðakerfis eins og krafist er í útboðsskilmálum og ekki koma fram upplýsingar í gögnum sem lögð voru fram með tilboði að vottun liggi fyrir. Tilboðið uppfyllir því ekki útboðsskilmála og kemur því ekki til greina.$line$$line$$line$$line$Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Eflu og felur bæjarverkfræðingi að leita samninga á grundvelli tilboðsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
03
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 51.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi fyrir 16 íbúða fjölbýlishús að Holtsvegi 51.
04
Umsókn um byggingarleyfi - Vífilsstaðir 117904 - ungbarnaleikskóli.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi fyrir stækkun ungbarnaleikskóla á Vífilsstöðum.
05
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi viðauka við fjárhagsáætlanir, dags. 18.06.14.
Lagt fram.
06
Framlenging á samningi við Skólamat vegna skólaársins 2014-2015
Bæjarráð samþykkir að samningur við Skólamat ehf. um skólamálsverði í grunnskólum bæjarins verði framlengdur um eitt ár eða til 30. júní 2015, sbr. heimild í 4. gr. samningsins.$line$$line$$line$$line$Samningsfjárhæð hækkar um 11% og er helmingur vegna hækkunar á vísitölu neysluverðs en hækkun umfram vísitölu er tilkomin vegna aukins launakostnaðar sem skýrist m.a. af fjölgun nemenda sem nýta sér þjónustuna. Gjaldskrá vegna skólamáltíða verður óbreytt.$line$$line$$line$$line$Bæjarráð vísar til skólanefndar að skoða nánar fyrirkomulag á sölu heitra máltíða til grunnskólabarna í Garðabæ til framtíðar.$line$$line$$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa gerða viðauka við fjárhagsáætlun vegna aukinnar niðurgreiðslu.$line$$line$
07
Bréf Jóhönnu G. Ólafsdóttur varðandi afslátt á vinnuskyldu v. náms, dags. 22.04.14.
Bæjarráð samþykkir að verða við erindinu og felur bæjarstjóra afgreiðslu þess.
08
Tillaga að endurskoðun á innkaupareglum Garðabæjar, dags. 27.06.14.
Bæjarritari kynnti tillögu um endurskoðun á innkaupareglum bæjarins.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að hefja vinnu við endurskoðun á innkaupareglum bæjarins. Endurskoðun á reglunum skal unnin í samráði við endurskoðendur bæjarins og lögfræðisvið Sambands ísl. sveitarfélaga.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Ásbúð og Holtsbúð, dags. 27.06.14.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um kynningu skipulagsins samkvæmt 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Eyvindarholt 3 - landskipti, dags. 27.06.14.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um landskipti landspildu Eyvindarholts 3 samkvæmt 1. mgr. 48. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Urriðaholt, Norðurhluti 2, dags. 27.06.14.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga vegna tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna Holtsvegur 41 og 43, dags. 27.06.14.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 41 og 43.
13
Endurskoðun siðareglna kjörinna fulltrúa hjá Garðabæ samkvæmt 29. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011
Samkvæmt 1. mgr. 29. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011 skal ný sveitarstjórn taka afstöðu til þess hvort ástæða sé til að endurskoða gildandi siðareglur.$line$$line$Í ljósi þess að siðareglur fyrir kjörna fulltrúa í bæjarstjórn Garðabæjar tóku gildi í vor telur bæjarráð ekki ástæðu til að endurskoða þær nú.
14
Beiðni Framsóknarflokksins um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í fastanefndum bæjarstjórnar.
Bæjarráð hafnar erindinu og vísar til þess að í sveitarstjórnarlögum er ekki heimild fyrir framboðslista sem ekki ná kjöri í bæjarstjórn að tilnefna áheyrnarfulltrúa.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir greiddi atkvæði með samþykkt erindisins.$line$$line$Vegna ágreinings um afgreiðslu málsins er því vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
15
Bréf Önnu B. Rögnvaldsdóttur varðandi afslátt á vinnuskyldu vegan náms á háskólastigi, dags. 30.04.14.
Bæjarráð samþykkir að verða við erindinu og felur bæjarstjóra afgreiðslu þess.
16
Bréf Önnu K. Björnsdóttur varðandi afslátt á vinnuskyldu vegna náms á háskólastigi, dags. 07.05.14.
Bæjarráð samþykkir að verða við erindinu og felur bæjarstjóra afgreiðslu þess.
17
Bréf stjórnar Húsfélagsins Kirkjulundur 6-8 og Garðatorgs 17 varðandi sölu á samkomusal húsfélagsins, dags. 24.06.14.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.
18
Kaup á húsnæði við Garðatorg 7
Bæjarráð samþykkir kaupsamning að fjárhæð 38,0 mkr um kaup á 252 m2 húsnæði á 1. hæð við Garðatorg 7.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að semja viðauka við fjárhagsáætlun vegna kaupanna.$line$$line$
19
Bréf Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru vegna breytingu á deiliskipulagi fyrir Arnarnes, dags. 24.06.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá greinargerð í málinu.
20
Bréf Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Arnarnes, dags. 24.06.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá greinargerð í málinu.
21
Bréf Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru vegna deiliskipulagsbreytinga fyrir Arnarnes, dags. 20.06.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá greinargerð í málinu.
22
Bréf Íbúasamtaka við Bæjarbraut varðandi hljóðmön og hraðahindrun á Bæjarbraut, dags. 24.07.14.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir málinu, sagði frá fundum með íbúum og tillögum verkfræðistofunnar Eflu um úrbætur.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnu á tækni- og umhverfissviði og til nánari skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
23
Minnisblað umhverfisstjóra varðandi umhirðu bæjarlandsins og sumarstörfin, dags. 27.06.14.
Á fund bæjarráðs mætti Erla Bil Bjarnardóttir, umhverfistjóri og gerði nánari grein fyrir minnisblaði um umhirðu bæjarlandsins og umfangi sumarstarfa á vegum bæjarins.
24
Staða framkvæmda samkvæmt fjárhagsáætlun 2014.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir stöðu framkvæmda samkvæmt fjárhagsáætlun 2014.
25
Fjárstreymisyfirlit jan.-mars 2014.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir yfirliti um stöðu málaflokka fyrir tímabilið janúar til mars 2014.