Framlenging á samningi við Skólamat vegna skólaársins 2014-2015
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
1. fundur
Minnisblað bæjarráðs vegna framlengingar samnings við Skólamat lagt fyrir fundinn og í framhaldi rætt um mötuneytismál skólanna.
Bæjarráð Garðabæjar
02
25. fundur
Bæjarráð samþykkir að samningur við Skólamat ehf. um skólamálsverði í grunnskólum bæjarins verði framlengdur um eitt ár eða til 30. júní 2015, sbr. heimild í 4. gr. samningsins.$line$$line$$line$$line$Samningsfjárhæð hækkar um 11% og er helmingur vegna hækkunar á vísitölu neysluverðs en hækkun umfram vísitölu er tilkomin vegna aukins launakostnaðar sem skýrist m.a. af fjölgun nemenda sem nýta sér þjónustuna. Gjaldskrá vegna skólamáltíða verður óbreytt.$line$$line$$line$$line$Bæjarráð vísar til skólanefndar að skoða nánar fyrirkomulag á sölu heitra máltíða til grunnskólabarna í Garðabæ til framtíðar.$line$$line$$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa gerða viðauka við fjárhagsáætlun vegna aukinnar niðurgreiðslu.$line$$line$