1. fundur
1. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
26.08.2014
Kl. 16:15 - 18:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
- Sveinbjörn M Njálsson - fulltrúi skólastjóra
- Bryndís Stefánsdóttir - fulltrúi kennara
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Kristbjörg Ágústsdóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
01
Kynning á starfsháttum nefnda.
Guðjón E. Friðriksson, bæjarritari kynnti reglur um starfshætti nefnda fyrir nýrri skólanefnd.
02
Kosning varaformanns skólanefndar grunnskóla
Jóhann Steinar Ingimundarson kosinn varaformaður skólanefndar
03
Skyldur og ábyrgð skólanefnda
Farið yfir helstu skyldur skólanefnda og kynnt drög að handbók Sambands íslenskra sveitarfélaga þar að lútandi. Kynntir fundartímar nefndarinnar til vors.
05
Tillaga um að taka upp viðræður við ríkið um rekstur Fjölbrautaskólans í Garðabæ
Skýrsla um rekstur FG
Lögð fram til kynningar skýrsla Gunnlaugs Sigurðssonar og Þorsteins Þorsteinssonar vegna samþykktar bæjarstjórnar Garðabæjar um að taka upp viðræður við mennta og menningarmálaráðuneytið um rekstur FG.
06
Úttekt á fyrirkomulagi og framkvæmd sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum
Skýrsla vegna úttektar á sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum lögð fram til kynningar.
Skýrslan lögð fram til upplýsinga.
07
Framlenging á samningi við Skólamat vegna skólaársins 2014-2015
Minnisblað bæjarráðs vegna framlengingar samnings við Skólamat lagt fyrir fundinn og í framhaldi rætt um mötuneytismál skólanna.