Beint í efni

Skólastefna Garðabæjar 2014-2017

Málsnúmer 1310553

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

2. fundur

Endurskoðuð skólastefna Garðabæjar lögð fram

Endurskoðun skólastefnu Garðabæjar er nú lokið og var farið yfir helstu áherslur hennar.$line$Þar ber hæst þjónusta við börn frá því að fæðingarorlofi lýkur og aukin samfella í námi barna með auknu samstarfi skólastiga.$line$Búið er að prenta plakat og reglustrikur með áherslupunktum skólastefnunnar sem dreift verður í skólana.$line$Skólastefnan mun verða aðgengileg á vef Garðabæjar.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

1. fundur

Ný skólastefna lögð fram til kynningar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

18. fundur

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir vinnu við endurskoðun skólastefnu Garðabæjar og sagði frá helstu áherslum og niðurstöðum.$line$$line$Bæjarráð gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við tillögu að endurskoðun skólastefnu og samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að stefnunni verði vísað til umfjöllunar nýrrar skólanefndar í upphafi nýs kjörtímabils.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

04

34. fundur

Drög að nýrri skólastefnu lögð fram til umræðu

Skóladeild falið að koma athugasemdum til stýrihóps um endurskoðun skólastefnu

Leikskólanefnd Garðabæjar

05

30. fundur

Drög að skólastefnu Garðabæjar

Drög að skólastefnu Garðabæjar lögð fram og rædd. Engar athugasemdir voru gerðar við það sem snýr að leikskólastiginu.

Leikskólanefnd Garðabæjar

06

25. fundur

Lúðvík Örn gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hafin er við endurskoðun á skólastefnu Garðabæjar. Samráð verður haft við foreldra, kennara og starfsfólk og nemendur leik- og grunnskóla í þeirri vinnu. Stefnt er að því að endurskoðuninni ljúki fyrir 1. mars 2014.