2. fundur
2. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Garðabæ
16.09.2014
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Viktoría Jensdóttir - formaður
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
- Snævar Sigurðsson - aðalmaður
- Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
- Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
- Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
- Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
Ritari
- Anna Magnea Hreinsdóttir
Dagskrá
01
Ársskýrsla leikskóla 2013-2014
Ársskýrslur leikskóla í Garðabæ lagðar fram
Ársskýrslur leikskóla í Garðabæ lagðar fram. Þær endurspegla fjölbreytt starf leikskólana ásamt mati á starfsáætlun skólaársins 2013 - 2014.$line$$line$Ársskýrslurnar sýna vel að leikskólarnir hafa allir mótað sér sérstöðu sem starf þeirra byggir á.
02
Skólastefna Garðabæjar 2014-2017
Endurskoðuð skólastefna Garðabæjar lögð fram
Endurskoðun skólastefnu Garðabæjar er nú lokið og var farið yfir helstu áherslur hennar.$line$Þar ber hæst þjónusta við börn frá því að fæðingarorlofi lýkur og aukin samfella í námi barna með auknu samstarfi skólastiga.$line$Búið er að prenta plakat og reglustrikur með áherslupunktum skólastefnunnar sem dreift verður í skólana.$line$Skólastefnan mun verða aðgengileg á vef Garðabæjar.
03
Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Kristín Margrét Guðmundsdóttir kt. 111157-6349 sækir um endurnýjun á leyfi. Samþykkt.
04
Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu í heimahúsi.
Hafdís Guðný Jakobsdóttir kt. 250657-2859 sækir um endurnýjun á leyfi. Samþykkt.
05
Kynningar og önnur mál 2014
Niðurgreiðslur til dagforeldra
Guðfinna Ingjaldsdóttir spyr hvort hægt sé að greiða foreldrum sem eru heima með börn sín eftir að fæðingarorlofi lýkur og þar til þau byrja á leikskóla niðurgreiðslu sambærilega þeirri sem dagforeldrar fá. Einnig var rætt um hvort og hvernig væri hægt að benda bæjarbúum á það að hægt sé að sækja um leyfi til gæslu færri barna en fjögurra þegar sótt er um dagforeldraleyfi. Á það helst um ættingja barna sem taka að sér að gæta þeirra tímabundið.
06
Kynningar og önnur mál 2014
Sigrún Sigurðardóttir kynnir starfsemi leikskólans Akra
Sigrún Sigurðardóttir leikskólastjóri Akra kynnti helstu áherslur í starfi leikskólans sem byggir á virkni og vellíðan. Sigrún fylgdi nefndarmönnum um húsnæði hans.