Beint í efni

Kynningar og önnur mál 2014

Málsnúmer 1401167

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

5. fundur

a) Formaður segir frá fundi hans með leikskólastjórum.$line$b) Formaður kynnir þróunarsjóð sem settur verður á laggirnar á næsta ári. Í hann geta leikskólar sótt til að standa að þróunarverkefnum í skólunum. Drög að úthlutunarreglum fyrir sjóðinn verði lagar fyrir næsta fund.$line$c) Rætt um stöðuna í uppbyggingu leikskóla.$line$d) Kristín Sigurbergsdóttir leikskólastjóri Bæjarbóls kynnir starf leikskólans og gengur með nefndarmönnum um húsnæði hans.

Leikskólanefnd Garðabæjar

02

4. fundur

Erna Káradóttir kynnti starfsemi Litlu Ása og sýndi nefndarmönnum húsnæði hans.

Leikskólanefnd Garðabæjar

03

3. fundur

a) Rætt um starfsleyfi dagforeldra og fjölda barna en hægt er að sækja um leyfi til að gæta eins til fjögurra barna fyrsta árið sem dagforeldri starfar. Ákveðið að gera skilyrði fyrir leyfisveitingu samkvæmt reglugerð um daggæslu í heimahúsum nr. 907/2005 aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar. Einnig var rætt um að kanna hvort bjóða ætti dagforeldrum í Garðabæ að velja milli þess að gerast launþegar og vera verktakar. Einnig var rætt um greiðslur til foreldra barna sem ekki eru í vistun hjá dagforeldrum eða í leikskóla.$line$b) Rætt um forsendur við fjárhagsáætlanagerð fyrir leikskólana. Gert er ráð fyrir launahækkunum í kjarasamningum og 5% hækkun á matarinnkaupum. Rætt um gjaldskrá leikskóla og mikilvægi þess að hún taki mið af vísitöluhækkun.$line$c) Rætt um heimsóknir presta í leikskóla og mikilvægi þess leikskólastjórar fylgi viðmiðum mennta- og menningarmálaráðuneytis um samskipti skóla og trúfélaga sem Garðabær hefur ákveðið að fylgja.$line$d) Gróa Margrét Finnsdóttir leikskólastjóri á Ásum kynnti starf skólans og sýndi nefndarmönnum húsnæði hans.

Leikskólanefnd Garðabæjar

04

2. fundur

Niðurgreiðslur til dagforeldra

Guðfinna Ingjaldsdóttir spyr hvort hægt sé að greiða foreldrum sem eru heima með börn sín eftir að fæðingarorlofi lýkur og þar til þau byrja á leikskóla niðurgreiðslu sambærilega þeirri sem dagforeldrar fá. Einnig var rætt um hvort og hvernig væri hægt að benda bæjarbúum á það að hægt sé að sækja um leyfi til gæslu færri barna en fjögurra þegar sótt er um dagforeldraleyfi. Á það helst um ættingja barna sem taka að sér að gæta þeirra tímabundið.

Leikskólanefnd Garðabæjar

05

2. fundur

Sigrún Sigurðardóttir kynnir starfsemi leikskólans Akra

Sigrún Sigurðardóttir leikskólastjóri Akra kynnti helstu áherslur í starfi leikskólans sem byggir á virkni og vellíðan. Sigrún fylgdi nefndarmönnum um húsnæði hans.

Leikskólanefnd Garðabæjar

06

31. fundur

Rætt um með hvaða hætti foreldra komi að starfi leikskóla svo sem með foreldraframlagi eða í afleysingar. Leikskólafulltrúa falið að móta verklagsreglur í samráði við leikskólastjóra.

Leikskólanefnd Garðabæjar

07

30. fundur

Rætt um þingsályktunartillögu um leikskóla að loknu fæðingarorlofi. Mennta- og menningarmálaráðherra var falið að skipa nefnd með þátttöku sveitarfélaganna, sérfræðinga og hagsmunaaðila sem geri tillögu að áætlun um hvernig sveitarfélögin standi að því að bjóða leikskólaúrræði strax og fæðingarorlofi lýkur. Miðað er við að þegar fæðingarorlof hefur verið lengt í 12 mánuði árið 2016 verði sveitarfélög um landið reiðubúin að veita þjónustuna.

Leikskólanefnd Garðabæjar

08

29. fundur

Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur var gestur fundarins. Eysteinn gerði grein fyrir þeim framkvæmdum sem fyrirhugaðar eru á næstu mánuðum í uppbyggingu leikskóla. Má þar fyrst nefna stækkun Lundabóls um þrjár deildir. Í Flataskóla verður útisvæði fyrir 4 og 5 ára börnin girt af. Einnig eru fleiri framkvæmdir fyrirhugaðar innanhúss þegar fjöldi barna liggur fyrir. Á Ökrum er verið að laga bílastæði. Verið er að athuga húsnæði á Vífilstöðum fyrir börn á leikskólaaldri. Að lokum nefndi Eysteinn skólabyggingar í Urriðaholti sem munu byggjast upp samhliða íbúðarbyggð á svæðinu.$line$$line$Formaður fór yfir vinnu við endurskoðun skólastefnu og upplýsti helstu áherslur varðandi leikskólamálefni sem komið hefðu fram í vinnu stýrihópsins og í niðurstöðum skólaþings

Leikskólanefnd Garðabæjar

09

27. fundur

Kynning leikskólastjóra Litlu Ása

Dagrún Jónsdóttir stjórnandi á Litlu Ásum og Erna Káradóttir leikskólastjóri Ása tók á móti nefndarmönnum og kynntu húsnæði og starfsemi Litlu Ása.