29. fundur
29. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
06.03.2014
Kl. 16:30 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Lúðvík Örn Steinarsson - formaður
- Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir - aðalmaður
- Heimir Erlingsson - aðalmaður
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- Ásdís Magnúsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
- Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
- Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
Ritari
- Anna Magnea Hreinsdóttir
Dagskrá
01
Endurskoðun íþrótta og tómstundastefnu
Drög að endurskoðaðri íþrótta og tómstundastefnu til kynningar
Drög að íþrótta og tómstundastefnu lögð fram til kynningar. Leikskólanefnd leggur áherslu á að tekið verði tillit til leikskólastigsins varðandi æfingar, upplýsingar, aðgengi að íþróttamannvirkjum og íþróttaskóla með kynningu á hinum ýmsu íþróttagreinum í nýrri stefnu.
02
Skólanámskrár leikskóla 2014
Skólanámskrá Holtakots
Skólanámskrá Holtakots ásamt umsögn foreldraráðs lögð fram og rædd. Holtakot er heilsuleikskóli með áherslu á hreyfingu, næringu og sköpun. Leikskólinn flaggar Grænfánanum og vinnur eftir uppbyggingastefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Skólanámskráin lýsir vel því fjölbreytta starfi sem fram fer í leikskólanum.
03
Skólanámskrár leikskóla 2014
Skólanámskrá Bæjarbóls
Skólanámskrá Bæjarbóls ásamt umsögn foreldraráðs lögð fram og rædd. Bæjarból er elsti leikskólinn í Garðabæ og hefur verið heilsuleikskóli frá árinu 2010. Einkunnarorð leikskólans eru leikgleði, agi og lífsleikni og er þar lagt mikið upp úr góðum samskiptum. Skólanámskráin er skýr og framsetning til fyrirmyndar.
04
Skólanámskrár leikskóla 2014
Skólanámskrá Ása
Skólanámskrá Ása og Litlu Ása lögð fram. Afgreiðslu frestað til næsta fundar þar sem umsögn foreldraráðs fylgdi ekki með.
05
Öryggishandbók leikskóla - drög
Öryggishandbók leikskóla - drög
Drög að öryggishandbók leikskóla sem mennta- og menningarmálaráðuneytið hyggst gefa út í vor kynnt. Stjórnendur leikskóla munu fara á kynningu og námskeið í næstu viku um innihald hennar.
06
Kynningar og önnur mál 2014
Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur var gestur fundarins. Eysteinn gerði grein fyrir þeim framkvæmdum sem fyrirhugaðar eru á næstu mánuðum í uppbyggingu leikskóla. Má þar fyrst nefna stækkun Lundabóls um þrjár deildir. Í Flataskóla verður útisvæði fyrir 4 og 5 ára börnin girt af. Einnig eru fleiri framkvæmdir fyrirhugaðar innanhúss þegar fjöldi barna liggur fyrir. Á Ökrum er verið að laga bílastæði. Verið er að athuga húsnæði á Vífilstöðum fyrir börn á leikskólaaldri. Að lokum nefndi Eysteinn skólabyggingar í Urriðaholti sem munu byggjast upp samhliða íbúðarbyggð á svæðinu.$line$$line$Formaður fór yfir vinnu við endurskoðun skólastefnu og upplýsti helstu áherslur varðandi leikskólamálefni sem komið hefðu fram í vinnu stýrihópsins og í niðurstöðum skólaþings