Endurskoðun íþrótta og tómstundastefnu
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
39. fundur
Liggur fyrir til samþykktar eftir að kallað hefur verið eftir athugasemdum annarra nefnda innan Garðabæjar.
Samþykkt að senda fyrirliggjandi stefnu í íþrótta- og tómstundamálum til bæjarstjórnar til endanlegrar samþykktar.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
33. fundur
Stefnan kynnt og rædd og sviðstjóra fræðslu og menningarsviðs falið að koma athugasemdum til hlutaðeigandi aðila.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
29. fundur
Drög að endurskoðaðri íþrótta og tómstundastefnu til kynningar
Drög að íþrótta og tómstundastefnu lögð fram til kynningar. Leikskólanefnd leggur áherslu á að tekið verði tillit til leikskólastigsins varðandi æfingar, upplýsingar, aðgengi að íþróttamannvirkjum og íþróttaskóla með kynningu á hinum ýmsu íþróttagreinum í nýrri stefnu.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
1. fundur
Drög að endurskoðaðri íþrótta- og tómstundastefnu Garðabæjar lögð fram. Engar athugasemdir voru gerðar.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
05
37. fundur
Forstöðumaður fræðslu og menningarsviðs sendi nefndum drög að endurskoðun íþrótta- og tómstundastefnu til umsagnar þann 18. febrúar sl.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við drögin.