37. fundur
37. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
26.02.2014
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
- Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
- Sigurbjörn Ingimundarson - aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
- Valdimar Bergsson - varamaður
- Elías Jakob Bjarnason - áheyrnarfulltrúi
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1402170
01
Ástand og hreinsun bæjarlækjanna
Gestir: Hálfdán Þórir Markússon verkfræðingur hjá Strendingi ehf. og Sigurður Hafliðason forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar.$line$Kynntu þeir framvindu verkefnisins sem hófst 2012, búið er að kortleggja allar aðgerðir, lagnagerðir o.fl.
Umhverfisnefnd þakkar mjög góða og yfirgrips mikla kynningu á verkefninu. Nefndin er ánægð með þá aðgerðaráætlun sem er í gangi.$line$Mikilvægt að halda vöktun stöðugri á lagnakerfi bæjarins til að halda bæjarlækjunum hreinum.
Málsnúmer 1402108
02
Trjágróður á lóðamörkum 2014
Minnisblöð garðyrkjustjóra dags. 31.01.14 og 14.02.14 um trjágróður á lóðamörkum í bænum. Þar kemur fram að ástandið hefur lagast frá fyrri árum. Athugasemdir nú eru 138, móti 371 á fyrra ári. Samt eru fáir aðilar sem ekki lagfæra trjágróður sinn við lóðamörk þrátt fyrir ítrekuð bréf og eftirfylgni garðyrkjustjóra.
Nefndin er ánægð með að ástandið á trjágróðri á lóðamörkum hefur batnað.$line$$line$Umhverfisnefnd styður aðgerðir garðyrkjustjóra að framkvæma klippingu á kostnað lóðaeiganda.
Málsnúmer 1309195
03
Trjágróður í Garðabæ
Lögð fram drög að markmiðum sem ætlað er að upplýsa um reglur og viðmið sem Garðabæ hefur sett sér að vera gróðursæll og snyrtilegur bær.
Nefndin mun senda bæjarráði tillögur sínar og eftirfylgni á verkefninu.$line$$line$Hugmynd að bjóða uppá námskeið fyrir garðeigendur í umhirðu trjágróðurs og tegundavali, það gæti verið í samstarfi við Skógræktarfélagið.
Málsnúmer 1402171
04
Plastpokalaus Garðabær
Innkaup á burðarpokum til dreifingar til íbúa.$line$Undirbúningur plastpokalausrar viku í Garðabæ.
Með þessu framtaki nefndarinnar er stuðlað að minnkandi notkun plastpoka við innkaup almennings. Einnig til að vekja umræðu um hverjar eru afleiðingar notkunar plastpoka sem eyðast seint úti í náttúru og hafi.$line$$line$Átakið plastpokalaus vika er fyrirhuguð í tengslum við hreinsunarátak eða vorhreinsun lóða. $line$Öll heimili í bænum fá taupoka fyrir matarinnkaupin.
Málsnúmer 1402245
05
Hreinsunarátak 2014
Hreinsunarátak með hvatningarstyrkjum til hópa sem hreinsa til í nærumhverfinu er dagana 1. - 15. apríl. Sótt er um þátttöku hjá umhverfisstjóra sem úthlutar svæðum. Að verki loknu hirða starfsmenn bæjarins upp eftir hópana og þátttakendur fá hvatningastyrk.$line$Vorhreinsun lóða verður dagana 9. - 16. maí þ.e. þjónusta við garðeigendur að fjarlægja garðaúrgang frá lóðum.
Hreinsunarátakið og vorhreinsun lóða verður auglýst í upplýsingabæklingi sem dreift verður á hvert heimili í lok mars og kynnt í Garðapóstinum. $line$$line$Nefndin hyggst fylgja verkefninu eftir að hópar og félög taki svæði í sínu nærumhverfi í fóstur.
Málsnúmer 1402243
06
Samningur um beitarhólf
Drög að endurnýjuðum samningi um beitarhólf fyrir sauðfé í Krýsuvík frá Hafnarfjarðarbæ 11.02.14.
Nefndin samþykkir drög að nýjum samningi um beitarhólfið í Krýsuvík.
Málsnúmer 1401662
07
Ástandskýrsla friðlýstra svæða 2013
Skýrsla umhverfisstjóra yfir ástand friðlýstra svæða í Garðabæ árið 2013 gerð að beiðni Umhverfisstofnunnar.
Lagt fram.
Málsnúmer 1402049
08
Brennuhald um áramótin 2013-2014
Frá Heilbrigðiseftirliti bréf 30.01.14 og skýrsla Áramóta- og þrettándabrennur 06.01.14. Fram kemur í skýrslunni að loftgæðamælingar um áramót sýna að rykmengun frá brennuhaldi á höfuðborgarsvæðinu er í heildina fremur lítið. Hún getur þó vissulega verið umtalsverð í nærumhverfi brenna og eins geta veðurskilyrði verið mis hagstæð.
Lagt fram.
Málsnúmer 1401222
09
Samráðshópur um Staðardagskrá 21 - 2014
Af samráðsfundi Staðardagskrárhóp 21 þann 17.02.14.
Umhverfisstjóri kynnti það helsta sem þar kom fram.
Málsnúmer 1401188
10
Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs
Fundargerð stjórnar Fókvangsins 17.01.14.
Lögð fram.
Málsnúmer 1312307
11
Pappírsúrgangur
Leiðbeiningar fyrir fjölbýlishús varðandi pappírsúrgang.
Umhverfisstjóri kynnti nýtt myndrænt veggspjald sem gert er til að hvetja íbúa fjölbýla til að minnka umfang pappírsúrgangs og nýta ílátin betur.
Málsnúmer 1402323
12
Fræðslugöngur 2014
Tillaga frá Ragnheiði Traustadóttur að fræðslugöngum.$line$1. Ganga og skoða minjar á norðurbakka Skógtjarnar og á Hliði.$line$2. Ganga frá Hofsstöðum að Urriðakoti í tilefni tíu ára afmælis minjagarðsins á Hofsstöðum.
Umhverfisnefndin hefur áhuga á að bjóða uppá göngur með sögulegri fræðslu. Fjölmargt er að skoða og fræðast um í bæjarlandinu og möguleikar á góðu leiðsögufólki í bænum.$line$$line$Umhverfisstjóra falið að undirbúa næstu göngur.
Málsnúmer 1402383
13
Endurskoðun íþrótta og tómstundastefnu
Forstöðumaður fræðslu og menningarsviðs sendi nefndum drög að endurskoðun íþrótta- og tómstundastefnu til umsagnar þann 18. febrúar sl.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við drögin.
Málsnúmer 1402429
14
Uppgræðsla í Krýsuvík 2014
Bréf frá Landgræðslu ríkisins dags. 13.02.2014 um uppgræðslu í Krýsuvík og skýrslu um uppgræðslu í beitarhólfi Hafnfirðinga í Krýsuvík. Yfirlit aðgerða 1988-2013 og áætlun næstu 10 ára.
Lagt fram.
Málsnúmer 1208528
15
Friðlýsing Búrfells sem náttúruvættis og Búrfellshrauna sem fólkvangs.
Formaður vakti máls á stöðu friðlýsinga Búrfells og hrauna. Þrátt fyrir einlægan vilja Garðabæjar hefur ekki náðst að þoka málinu áfram í ráðuneytum.
Nefndin harmar kyrrstöðu ráðuneyta í þessu máli.