Ástand og hreinsun bæjarlækjanna
Málsnúmer 1402170
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
37. fundur
Gestir: Hálfdán Þórir Markússon verkfræðingur hjá Strendingi ehf. og Sigurður Hafliðason forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar.$line$Kynntu þeir framvindu verkefnisins sem hófst 2012, búið er að kortleggja allar aðgerðir, lagnagerðir o.fl.
Umhverfisnefnd þakkar mjög góða og yfirgrips mikla kynningu á verkefninu. Nefndin er ánægð með þá aðgerðaráætlun sem er í gangi.$line$Mikilvægt að halda vöktun stöðugri á lagnakerfi bæjarins til að halda bæjarlækjunum hreinum.
Bæjarráð Garðabæjar
02
6. fundur
Bæjarverkfræðingur lagði fram og gerði grein fyrir minnisblaði um málið. Í minnisblaðinu eru mögulegar orsakir mengunar greindar, ástandinu lýst, fjallað um árangur af aðgerðum og kynnt áætlun um verkefni ársins 2014.