6. fundur
6. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
11.02.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1311358
01
Ársreikningur 2013: Skýrsla endurskoðanda um ábendingar og stjórnsýslu.
Lagðar fram athugasemdir og ábendingar KPMG vegna endurskoðunar ársreiknings fyrir árið 2013 ásamt skýrslu um stjórnsýsluskoðun.
Málsnúmer 1402169
02
Bréf Hamla 1 ehf. varðandi deiliskipulag fyrir Setbergsland, dags. 03.02.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til vinnu við endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar.
Málsnúmer 1402133
03
Bréf Strætó bs. varðandi skýrslu um farþegatalningar, dags. 13.01.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að leita eftir upplýsingum og gögnum um farþegatalningar á leiðum Strætó innan Garðabæjar öðrum en leið nr. 1.
Málsnúmer 1311365
04
Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til heilbrigðisráðherra varðandi sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 03.02.14.
Lagt fram.$line$$line$Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála en náðst hefur samkomulag milli aðila um að taka upp viðræður um gerð nýs samnings. Náist ekki samkomulag innan fjögurra vikna munu hefjast viðræður um verklok. Samkomulag er milli aðila um að ræða ekki málið við fjölmiðla meðan reynt er að leita samninga um málið.
Málsnúmer 1402157
05
Bréf Hildar K. Ragnarsdóttur ofl. varðandi styrk vegna námsferðar, dags. 03.02.14.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.
Málsnúmer 1310333
06
Drög að samningi um uppbyggingu norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Málsnúmer 1402170
07
Fyrirspurn Steinþórs Einarssonar, bæjarfulltrúa, varðandi áætlanir um hreinsun bæjarlækjanna, dags. 07.02.14.
Bæjarverkfræðingur lagði fram og gerði grein fyrir minnisblaði um málið. Í minnisblaðinu eru mögulegar orsakir mengunar greindar, ástandinu lýst, fjallað um árangur af aðgerðum og kynnt áætlun um verkefni ársins 2014.
Málsnúmer 1402174
08
Fyrirspurn Steinþórs Einarssonar, bæjarfulltrúa, varðandi fjölgun strætóskýla, dags. 07.02.14.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir samstarfi við Strætó vegna ábendinga og athugasemda við leiðarkerfið. $line$$line$Varðandi staðsetningu skýla kom fram við Hafnarfjarðarveg eru skýli við allar stoppistöðvar sem rekin eru af auglýsingastofu. Áætlanir eru um að fjölga skýlum á öðrum leiðum og þeir staðir sem þykja helst koma til greina í því sambandi eru: Sjálandsskóli, Suðurnesvegur, Norðurnesvegur, Vífilsstaðir, Kauptún, Miðbær, Molduhraun og Prýðishverfi.
Málsnúmer 1401051
09
Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 31.01.- 07.02.2014
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 31.01. ? 07.02.2014 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Suðurhraun 12a.
Málsnúmer 1402173
10
Bréf Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands varðandi styrktarsjóð EBÍ 2014, dags. 04.02.14.
Í bréfinu er vakin athygli á starfsemi styrktarsjóðs EBÍ en tilgangur sjóðsins er að styrkja með fjárframlögum sérstakar athuganir eða rannsóknir á ýmsum þróunarþáttum í atvinnulífi, samgögnum, fræðslu- og menningarmálum. Umsóknarfrestur er til 30. apríl.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að sækja um styrk í sjóðinn vegna innleiðingar á barnsáttmála Sameinuðu þjóðanna í starfsemi skólanna bænum.
Málsnúmer 1402049
11
Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi skýrslu um brennuhald um áramótin 2013-2014, dags. 30.01.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1402155
12
Bréf Inkasso varðandi samstarf um innheimtu, dags. 31.01.14.
Lagt fram.