Beint í efni

Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til heilbrigðisráðherra varðandi sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 03.02.14.

Málsnúmer 1311365

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

6. fundur

Lagt fram.$line$$line$Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála en náðst hefur samkomulag milli aðila um að taka upp viðræður um gerð nýs samnings. Náist ekki samkomulag innan fjögurra vikna munu hefjast viðræður um verklok. Samkomulag er milli aðila um að ræða ekki málið við fjölmiðla meðan reynt er að leita samninga um málið.

Bæjarráð Garðabæjar

02

5. fundur

Bæjarstjóri upplýsti um að bréfinu hefur verið svarað og að boðað hafi verið til fundar með velferðarráðuneytinu til að ræða um samningsgrundvöllinn sem skrifað var undir á sínum tíma og/eða verklok samningsins.$line$$line$Bréfið lagt fram.

Bæjarráð Garðabæjar

03

4. fundur

Bæjarstjóri kynnti stöðu málsins og sagði m.a. frá fundi um málið með velferðarnefnd Alþingis.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að gera eftirfarandi samþykkt vegna málsins.$line$$line$?Bæjarráð Garðabæjar lýsir fullum stuðningi við stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og staðfestir umboð hennar í þeirri erfiðu vinnu sem farið hefur fram óslitið frá því í október 2011 vegna endurnýjunar á samningi á sjúkraflutningum SHS. Samlegðaráhrif sjúkraflutninga og slökkviliðs eru ótvíræð auk þess sem fyrirsjáanleg fækkun slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í SHS vegna aðskilnaðar sjúkraflutninga frá slökkviliði mun skerða öryggi á höfuðborgarsvæðinu.$line$Skorað er á ríkisstjórn Íslands að standa við innihald þess samkomulagsgrundvallar sem gerður var milli aðila í febrúar 2013. Samningur á grundvelli samkomulagsins liggur fyrir, en hefur hvorki verið undirritaður né hefur ríkið greitt fyrir þjónustuna í samræmi við kostnaðarmat sem honum lá til grundvallar og unnið var af óháðum aðila. Á meðan svo er niðurgreiða sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sjúkraflutninga en taka skal fram að sjúkraflutningar eru á verksviði ríkisins samkvæmt lögum.$line$Bæjarráð lýsir vonbrigðum sínum vegna skilningsleysis heilbrigðisráðuneytisins á því að ríkið þurfi að greiða þann kostnað sem ríkinu ber og hefur nú leitt til þess að stjórn SHS hefur þurft að grípa til þess neyðarúrræðis að biðja um verklok vegna þjónustunnar. Það neyðarúrræði byggist ekki á einlægum vilja til þess að slíta samstarfi ríkis og sveitarfélaga og skilja að sjúkraflutninga og slökkvistarf, heldur á algjöru vonleysi gagnvart stöðu mála.?

Bæjarráð Garðabæjar

04

50. fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála í viðræðum stjórnar SHS við velferðarráðuneytið um rekstur sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarráð Garðabæjar

05

48. fundur

Lagt fram.