5. fundur
5. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
04.02.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Aðgerðaráætlun og kortlagning hávaða skv. reglugerð nr 1000/2005.
Bæjarverkfræðingur kynnti aðgerðaráætlun til varnar hávaða ásamt hávaðakorti sem auglýst var og kynnt almenningi í september 2013, samkvæmt 8. gr. reglugerðar um kortlagningu hávaða og aðgerðaráætlanir nr. 1000/2005. Engar athugasemdir bárust í athugasemdarfresti.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að aðgerðaráætlunin verði send til Umhverfisstofnunar samkvæmt 6. mgr. 8. gr. áðurnefndrar reglugerðar.
02
Bréf Hjálparsveit skáta og Vífils varðandi fasteignagjöld fyrir árið 2014, dags. 28.01.14.
Bæjarráð samþykkir að veita Skátafélaginu Vífli og Hjálparsveit skáta í Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 2.222.920 til greiðslu fasteignagjalda af húseign félaganna við Bæjarbraut 7.
03
Bréf Samanhópsins varðandi beiðni um fjárstuðning vegna ársins 2014, dags. 24.01.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu forvarnarnefndar.
04
Bókun hverfisstjórnar Álftaness varðandi hækkun vatnsgjalds á Álftanesi, dags. 30.01.14.
Í bókuninni er vakin athygli á hækkun vatnsgjalds á Álftanesi sem lagt er á samkvæmt gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur samkvæmt samningi sem Sveitarfélagið Álftanes gerði á sínum tíma við Orkuveituna.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
05
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga (afrit af bréfi til Hafnarfjarðar) varðandi endurskoðun samninga um byggingu hjúkrunarheimila skv. leiguleið, dags. 24.01.14.
Lagt fram.
06
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi kynningu á námsmatshefti fyrir leikskóla, dags. 23.01.14.
Lagt fram.
07
Bréf Strætó bs. varðandi leiðakerfisbreytingar 2015, dags. 23.01.14.
Í bréfinu er farið fram á tillögur eða óskir um breytingar eða úrbætur á leiðarkerfi Strætó bs. sem taka á gildi á árinu 2015. Frestur til að koma á framfæri tillögum er til 13. júní 2014.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar bæjarstjóra sem falið er að boða til kynningarfundar með fulltrúum Strætó bs. í apríl n.k..
08
Bréf Samfylkingarinnar varðandi ályktun um útvistun á rekstri hjúkrunarheimila til einkaaðila, dags. 27.01.14.
Lagt fram.
09
Bréf velferðarráðuneytisins varðandi sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 24.01.14.
Bæjarstjóri upplýsti um að bréfinu hefur verið svarað og að boðað hafi verið til fundar með velferðarráðuneytinu til að ræða um samningsgrundvöllinn sem skrifað var undir á sínum tíma og/eða verklok samningsins.$line$$line$Bréfið lagt fram.
10
Bréf Skáksambands Íslands varðandi styrk vegna Reykjavíkurskákmótsins 2014, mótt. 28.01.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs.
11
Bréf Ísólfs Gylfa Pálssonar varðandi styrk til útgáfu tónlistar, dags. 28.01.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
12
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi tilraunaverkefni um rafnrænar íbúakosningar, dags. 27.01.14.
Lagt fram.
13
Bréf sýslumanns varðandi umsögn um umsókn um gistileyfi að Hliðsnesvegi 6, dags. 29.01.14.
Afgreiðslu frestað.
14
Bréf Húsfélagsins Birkiholt 1 varðandi öryggis- og lokaúttekt á fjölbýlishúsinu Birkiholti 1, dags. 22.01.14.
Bæjarráð vísar málinu til tækni- og umhverfissviðs.
17
Bréf Vegagerðarinnar varðandi breytingu á gatnamótum Álftanesvegar og Hraunholtsvegar, 24.01.14.
Lagt fram.
18
Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 24.01. - 31.01.2014.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 17.01 ? 24.01.2014 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Hraunagötu 3-17 og Tjarnarflöt 12.
19
Bréf Ríkisendurskoðunar varðandi ársreikning Holtsbúðar fyrir árið 2013, dags. 30.01.14.
Lagt fram.