Aðgerðaráætlun vegna hávaða samkvæmt rgg. 1000/2005
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
7. fundur
Bæjarverkfræðingur upplýsti að á kynningartíma aðgerðaráætlunarinnar kom fram athugasemd frá íbúum við Laufás 4 en vegna mistaka hafi ekki verið gerð grein fyrir henni við fyrirtekt málsins á fundi bæjarráðs 29. janúar sl.$line$$line$Í tilefni af athugasemdinni samþykkir bæjarráð tillögu bæjarverkfræðings um að á bls. 11 í kafla um verkefni í undirbúningi komi nýr liður er hljóði svo:$line$$line$?f. Veggur /varnir við Hafnarfjarðarveg á Hraunsholti.?$line$$line$Bæjarráð felur bæjarverfræðingi að gera íbúum grein fyrir afgreiðslu málsins og að senda áætlunina með samþykktri breytingu til Umhverfisstofnunar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
5. fundur
Bæjarverkfræðingur kynnti aðgerðaráætlun til varnar hávaða ásamt hávaðakorti sem auglýst var og kynnt almenningi í september 2013, samkvæmt 8. gr. reglugerðar um kortlagningu hávaða og aðgerðaráætlanir nr. 1000/2005. Engar athugasemdir bárust í athugasemdarfresti.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að aðgerðaráætlunin verði send til Umhverfisstofnunar samkvæmt 6. mgr. 8. gr. áðurnefndrar reglugerðar.