Beint í efni

48. fundur

03.12.2013
Bæjarráð Garðabæjar

48. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

03.12.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
  • Páll Jóhann Hilmarsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1311574

01

Bréf UMF Stjörnunnar um hækkun rekstrarstyrks árin 2013 og 2014, dags. 21.11.2013.

Bæjarstjóri fjallaði um erindi Stjörnunnar þar sem farið er fram á hækkun rekstrarstyrks árin 2013 og 2014. Bæjarstjóri lagði til að við afgreiðslu á fjárhagsáætlun 2014 verði styrkir sem heyra undir íþrótta- og tómstundaráð (06-890) hækkaðir um kr. 6.000.000.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu bæjarstjóra til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.

Málsnúmer 1311599

02

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um barnaverndarlög (rekstur heimila fyrir börn), 186. mál, dags. 25.11.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1311587

03

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um náttúruvernd (brottfall laganna), 167. mál, dags. 25.11.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1304356

04

Bréf Jóhannesar V. Bjarnasonar varðandi undanþágu frá þinglýstum kvöðum á Hliðsvegi 1, dags. 14.11.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á kvöð vegna veðsetningar þannig að hámarksfjárhæð hækki í kr. 58.400.000 samkvæmt 4. tl. A-liðar í skjali, dags. 15. mars 2005.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að falla frá forkaupsrétti vegna fyrirhugaðra breytinga á eignarhaldi en Fjörukráin ehf. sem er eigandi að 50% eignarhlut mun kaupa 50% eignarhlut Jóhannesar Bjarnasonar og verða 100% eigandi eignarinnar.

Málsnúmer 1311591

05

Beiðni sýslumanns um umsögn vegna umsóknar Fjörukráarinnar um veitingaleyfi og leyfi til heimagistingar að Hliði, dags. 14.11.13.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið rekstrarleyfi fyrir veitingastað verði veitt en gerir fyrirvara varðandi leyfi til heimagistingar.

Málsnúmer 1307431

06

Samningur við Vátryggingafélag Íslands hf um tryggingar Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

Málsnúmer 1311681

07

Bréf KPMG um staðfestingu á óhæði endurskoðenda, dags. 27.11.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1310057

08

Áskorun til bæjarstjórnar frá íbúum í Hrísholti um umgengni við Hrísholt 4.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við eiganda Hrísholts 4 um bættan frágang við húsið og niðurtekt á vinnupöllum.$line$$line$Bæjarstjóra falið að svara íbúum.

Málsnúmer 1306485

09

Bréf Fugla- og náttúruverndarfélags Álftaness o.fl. varðandi 100 ára afmæli Bjarnastaðaskóla, dags. 24.11.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1311365

10

Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til velferðarráðuneytisins um framkvæmd verkloka þjónustu vegna sjúkraflutninga, dags. 25.11.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1301109

11

Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2013

Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 15.11. - 22.11.13 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Garðatorg 4.

Málsnúmer 1307042

12

Fjárhagsáætlun 2014

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum að breytingum við fjárhagsáætlun sem kynntar hafa verið milli umræðna.$line$$line$Bæjarstjóri lagði fram tillögu að álagningu útsvars og fasteignagjalda og kynnti eftirfarandi gjaldskrár.$line$$line$Gjaldskrá fyrir vatnsgjald, notkunargjald og heimæðargjald hjá Vatnsveitu Garðabæjar.$line$Gjaldskrá um hreinsun taðþróa.$line$Gjaldskrá um sorphirðu í Garðabæ.$line$$line$Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2014 ? 2017 til síðari umræðu í bæjarstjórn á fundi 6. desember n.k.