4. fundur
4. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
28.01.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1401051
01
Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 17.01.-24.01.2014.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 17.01 ? 24.01.2014 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Norðurbrú 5. Löngulínu 15-23.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa umsókn um byggingarleyfi vegna framkvæmda við Furulund 3 til meðferðar samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1401634
02
Bréf foreldrafélags Sunnuhvols varðandi bætt aðgengi að leikskólanum, dags. 21.01.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.
Málsnúmer 1401647
03
Fyrirspurn frá Fólkinu í bænum varðandi deiliskipulag Ása og Grunda - Arnarnesvogur, dags. 23.01.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Málsnúmer 1401641
04
Bréf verkefnisstjóra landsskipulagsstefnu varðandi þátttöku í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskipulagsstefnu 2015-2026, dags. 20.01.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1401519
05
Bréf Hestamannafélagsins Spretts varðandi vígsluhátíð nýrrar reiðhallar og undirritun rekstrarsamnings, dags. 17.01.14.
Bæjarráð þakkar boð á vígsluhátíð nýrrar reiðhallar kl. 16:00 laugardaginn 1. febrúar n.k.$line$$line$Bæjarráð vísar afgreiðslu rekstrarsamnings til bæjarstjóra með fyrirvara um samþykki bæjarráðs vegna hækkunar á samningsfjárhæð.
Málsnúmer 1311365
06
Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til heilbrigðisráðherra varðandi verklok þjónustu vegna sjúkraflutninga, dags. 17.01.14.
Bæjarstjóri kynnti stöðu málsins og sagði m.a. frá fundi um málið með velferðarnefnd Alþingis.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að gera eftirfarandi samþykkt vegna málsins.$line$$line$?Bæjarráð Garðabæjar lýsir fullum stuðningi við stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og staðfestir umboð hennar í þeirri erfiðu vinnu sem farið hefur fram óslitið frá því í október 2011 vegna endurnýjunar á samningi á sjúkraflutningum SHS. Samlegðaráhrif sjúkraflutninga og slökkviliðs eru ótvíræð auk þess sem fyrirsjáanleg fækkun slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í SHS vegna aðskilnaðar sjúkraflutninga frá slökkviliði mun skerða öryggi á höfuðborgarsvæðinu.$line$Skorað er á ríkisstjórn Íslands að standa við innihald þess samkomulagsgrundvallar sem gerður var milli aðila í febrúar 2013. Samningur á grundvelli samkomulagsins liggur fyrir, en hefur hvorki verið undirritaður né hefur ríkið greitt fyrir þjónustuna í samræmi við kostnaðarmat sem honum lá til grundvallar og unnið var af óháðum aðila. Á meðan svo er niðurgreiða sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sjúkraflutninga en taka skal fram að sjúkraflutningar eru á verksviði ríkisins samkvæmt lögum.$line$Bæjarráð lýsir vonbrigðum sínum vegna skilningsleysis heilbrigðisráðuneytisins á því að ríkið þurfi að greiða þann kostnað sem ríkinu ber og hefur nú leitt til þess að stjórn SHS hefur þurft að grípa til þess neyðarúrræðis að biðja um verklok vegna þjónustunnar. Það neyðarúrræði byggist ekki á einlægum vilja til þess að slíta samstarfi ríkis og sveitarfélaga og skilja að sjúkraflutninga og slökkvistarf, heldur á algjöru vonleysi gagnvart stöðu mála.?
Málsnúmer 1312449
07
Bréf umhverfisnefndar varðandi nýtingu jarðvegs í Urriðaholti og nágrenni, dags. 15.01.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1401583
08
Bréf SSH varðandi kynningarfund vegna vinnu við verkefnið Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins.
Lagt fram.
Málsnúmer 1401554
09
Bréf Álftaneskórsins varðandi styrk vegna ársins 2014,, dags. 12.01.14.
Bæjarráð bréfinu til bæjarstjóra.
Málsnúmer 1301247
10
Skýrsla Fjölmiðlavaktarinnar varðandi umfjöllun um Garðabæ í fjölmiðlum árið 2013.
Lögð fram skýrsla Fjölmiðlavaktarinnar um tíðni umfjöllunar um Garðabæ í fjölmiðlum árið 2013.$line$$line$Alls var fjallað um Garðabæ í 589 fréttum/greinum í fjölmiðlum á árinu 2013 þar af voru 78 fréttir í ljósvakamiðlum, 245 í prentmiðlum og 266 í vefmiðlum. Á árinu 2013 var Garðabær í 89. sæti yfir lögaðila í fjölda frétta/greina.
Málsnúmer 1401493
11
Bréf Námsmatsstofnunarinnar varðandi ytra mat á grunnskólum, dags. 15.01.14.
Í bréfinu kemur fram að Námsmatsstofnun hefur valið að meta starf Barnaskóla Hjallastefnunnar en matið fer fram samkvæmt ákvæðum grunnskólalaga um eftirlit með skólastarfi.
Málsnúmer 1305491
12
Urriðaholtsskóli - Tilboð í hönnun.
Eftirfarandi tilboð í hönnun Urriðaholtsskóla (frumhönnun og hönnun 1. áfanga) eru lögð fram.$line$$line$ Gæðaþættir Tilboðsupphæð Samtals$line$Bjóðandi Stig kr Stig Stig$line$Úti og Inni 59,0 106.785.440 40,0 99,0$line$VJI 58,0 122.214.536 36,6 94,6$line$OG ark 58,0 104.961.925 40,0 98,0$line$THG 58,0 152.587.293 29,3 87,3$line$Kanon-arkitektar 58,0 89.145.788 40,0 98,0$line$VA 59,0 137.528.234 32,5 91,5$line$Hornsteinar 59,0 143.790.998 31,1 90,1$line$Arkþing 60,0 154.081.056 29,0 89,0$line$Albína Thordarson TV45 60,0 139.905.706 32,0 92,0$line$Arkitektur.is nr 1 58,0 188.890.991 23,7 81,7$line$Arkitektur.is nr 2 58,0 168.627.824 26,5 84,5$line$Arkís 60,0 176.835.525 25,3 85,3$line$Arkiteó 60,0 123.360.074 36,3 96,3$line$Einrúm 60,0 122.838.824 36,4 96,4$line$Verkís 60,0 165.451.043 27,0 87,0$line$$line$Kostnaðaráætlun er kr. 140.000.000.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að leita samninga við Úti og Inni arkitekta sem hlutu flest stig við samtölu stiga fyrir gæðaþætti og verð.
Málsnúmer 1312014
14
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi skil á viðaukum við fjárhagsáætlun, dags. 15.01.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1401520
15
Bréf NKG verkefnalausna varðandi hvatningu og styrk fyrir Nýsköpunarkeppni grunnskóla, dags. 20.01.14.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Málsnúmer 1305509
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag norðurhluta Urriðaholts, dags. 23.01.14.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1305510
17
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi vesturhluta Urriðaholts, Urriðaholtsskóli, dags. 23.01.14.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1301213
18
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda, Arnarnesvogur, dags. 23.01.14.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1310111
19
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi vesturhluta Urriðaholts, dsk br vegna salarhæðar fjölbýlishúsa, dags. 23.01.14.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1309702
20
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna Hellagötu 31, dags. 23.01.14.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1308041
21
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á dsk í Urriðaholti vegna Holtsvegar 51, dags. 23.01.14.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1309700
22
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á dsk vesturhluta Urriðaholts vegna Hraungötu 19-23, 41-45 og 47-51, dags. 23.01.14.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1212099
23
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á dsk. Urriðaholts vegna Hraungötu 25-39, dags. 23.01.14.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1304582
24
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á dsk Urriðaholts vegna Víkurgötu 2, dags. 23.01.14.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1312421
25
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á dsk. Flata vegna Stekkjarflatar 14, dags. 23.01.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata varðandi lóðina við Stekkjarflöt 14.
Málsnúmer 1401259
26
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á dsk. Urriðaholts vegna Hraungötu 3-17, dags. 23.01.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðareiganda við Hraungötu 3-17 um breytingu á deiliskipulagi sem felur m.a. í sér stækkun byggingarreits.