Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á dsk. Urriðaholts vegna Hraungötu 3-17, dags. 23.01.14.

Málsnúmer 1401259

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

4. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðareiganda við Hraungötu 3-17 um breytingu á deiliskipulagi sem felur m.a. í sér stækkun byggingarreits.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur bílageymslu stækki um einn metra að lóðarmörkum við Hraungötu.$line$Skipulagsnefnd hafnar tillögunni þar sem að þegar hafi verið gerð breyting á lóðinni þar sem byggingarreitur var stækkaður mikið að götu. Við enda lóðarinnar verður Urriðakotsstígur þar sem gera má ráð fyrir að verði mikil umferð gangandi og hjólandi vegfarenda og er hætt við að blindhorn myndist á þessum stað.