Beint í efni

2. fundur

23.01.2014
Skipulagsnefnd Garðabæjar

2. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

23.01.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stefán Snær Konráðsson - formaður
  • Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Agnar W Ástráðsson - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1301213

01

Breyting á dsk Ása og Grunda Arnarnesvogur FEB

Lögð fram tilllaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til svæðisins neðan Sjávargrundar og útivistarsvæðis við Arnarnesvog að lokinni kynningu í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga. Tillagan gerir ráð fyrir 30 raðhúsaeiningum á einni hæð. Tillagan var í kynningu frá 15.nóvember til 27.desember 2013. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 43.gr. sömu laga er tillagan því samþykkt með 3 atkvæðum. Sigríður Dís Guðjónsdóttir og Baldur Ó. Svavarsson greiða ekki atkvæði með tillögunni. Vegna ábendinga sem fram komu í forkynningu frá eigendum Selskarðs er vísað til fyrri svara bæjarstjórnar vegna deiliskipulagsáætlana í Garðalandi.$line$Baldur Ó. Svavarsson óskaði eftir því að eftirfarandi yrði fært til bókar: " Vara enn við þessari aðgerð. Hér er of hratt farið og of mörgum spurningum ósvarað. Vísa til fyrri bókana."

Málsnúmer 1305509

02

Urriðaholt-Norðurhluti deiliskipulag

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurhluta Urriðaholts að lokinni kynningu í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga. Tillagan gerir ráð fyrir 66-72 íbúðum í 3 fjölbýlishúsum og leikskólalóð. Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 43.gr. sömu laga er tillagan því samþykkt.

Málsnúmer 1305510

03

Urriðaholt, vesturhluti dsk-br Urriðaholtsskóli

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts að lokinni kynningu skv. 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga sem gerir ráð fyrir að grunnskólalóðin Vörðuvegur 1 og leikskólalóðin Vörðuvegur 3 sameinist í eina lóð Vörðuveg 1-3 og að gönguleið sem liggur á milli lóða verði felld út. Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 43.gr. sömu laga er tillagan því samþykkt.

Málsnúmer 1310111

04

Urriðaholt, vesturhluti, dsk br vegna salarhæðar

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts að lokinni kynningu skv. 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga sem gerir ráð fyrir að skilgreind salahæð fjölbýlishúsa í skilmálum deiliskipulagsins verði 2,9 m í stað 3,0.. Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 43.gr. sömu laga er tillagan því samþykkt.

Málsnúmer 1309702

05

Hellagata 31, dsk br

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts að lokinni kynningu skv. 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga sem gerir ráð fyrir að íbúðum fjölgi um 3 (úr 6 í 9) og bílastæðum um 6 (úr 12 í 18). Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 43.gr. sömu laga er tillagan því samþykkt.

Málsnúmer 1308041

06

Holtsvegur 51,Urriðaholti, dsk breyting

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts að lokinni kynningu skv. 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga sem gerir ráð fyrir að íbúðum fjölgi um 6 (úr 10 í 16) og bílastæðum um 16 (úr 20 í 36). Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 43.gr. sömu laga er tillagan því samþykkt.

Málsnúmer 1309700

07

Hraungata 19-23, 41-45 og 47-51, dsk br

Lagaðar fram tillögur að tveimur breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts að lokinni kynningu skv. 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga. Annarsvegar Hraungata 19-23 og hinsvegar Hraungata 41-45 og 47-51 og gera báðar tillögur ráð fyrir minniháttar breytingum á byggingarreitum . Tillögurnar voru í kynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 43.gr. sömu laga eru tillögurnar því samþykktar.

Málsnúmer 1212099

08

Hraungata 25-39, dsk-br - Urriðaholt vesturhl.

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts að lokinni kynningu skv. 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga sem gerir ráð fyrir að íbúðum fjölgi um 2 (úr 8 í 10) og bílastæðum um 4 (úr 18 í 22) eins og skipulagsnefnd hafði áður samþykkt. Valmöguleiki um raðhúsagerð R1 er felldur út og syðri hluti lóðar breytist í opið grænt svæði með stígtengingu við Holtsveg. Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 43.gr. sömu laga er tillagan því samþykkt.

Málsnúmer 1304582

09

Víkurgata 2, breyting á dsk Urriðaholts

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts að lokinni kynningu skv. 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga sem gerir ráð fyrir að íbúðum fjölgi um 2 (úr 8 í 10) og bílastæðum um 7 (úr 10 í 17). Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 43.gr. sömu laga er tillagan því samþykkt.

Málsnúmer 1302201

10

Varir á Álftanesi, deilskipulag

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vara á Álftanesi að lokinni kynningu í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga. Tillagan nær til íbúðarhúsabyggðar við Bjarnastaðavör, Litlubæjarvör, Sviðsholtsvör og Sveinskotsvör. Gert er ráð fyrir 15 nýjum einbýlishúsum á Sveinskotsreit en tillagaan nær einnig til núverandi byggðar þar sem fyrir eru 33 einbýlishús. Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Ein athugasemd barst við tillöguna. Tillögunni og athugasemd vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 2010120061

11

Arnarnes nýtt dsk

Tillaga að deiliskipulagi Arnarness og tillaga að breytingu aðalskipulags sem nær til sama svæðis lögð fram ásamt álitsgerðum Andra Árnasonar hrl.$line$Í athugasemdum íbúa sem bárust við tillögu að deiliskipulagi er ákvæðum um nýtingarhlutfall og byggðan flöt á lóð mótmælt og þess kraftist að tillagan verði endurauglýst án umræddra ákvæða.$line$Þegar tekin er afstaða til þessarar athugasemdar er nauðsynlegt að hafa í huga að eitt af meiginmarkmiðum deiliskipulagsins er að heimila eðlilega endurnýjun bygginga á svæðinu er taki mið af heildaryfirbragði hverfisins án þess að raska gæðum þess og réttindum íbúa.$line$Í tilefni af athugasemd íbúa um nýtingarhlutfall hefur Garðabær fengið Andra Árnason hrl. til þess að gefa alit á þessu tiltekna álitamáli. Niðurstaða hans er sú að heimilt sé í deiliskipulagi Arnarness að kveða á um að nýtingarhlutfall lóða sé takmarkað við 0.45 og að byggður flötur húss megi ekki vera stærri en 30% af flatarmáli lóðar. Vísað er álitið hvað varðar nánari rökstuðning fyrir þessari niðurstöðu.$line$Það leiðir af ákvæðum skipulagslaga að sveitarfélög fara með víðtækt skipulagsvald og í því felst réttur sem og ákveðin skylda til að hlutast til um þau atriði sem sérstaklega eru tilgreind í lögunum og reglugerðum þeim tengdum.$line$Í 37.gr. skipulagslaga þar sem fjallað eru um deiliskipulag, kemur skýrt fram að í deiliskipulagi skulu sett ákvæði um lóðir, lóðanotkun, byggingreiti,byggðarmynstur, þ.m.t. nýtingarhlutfall, útlit mannvirkja og form.$line$Í grein 5.3.2.1. í skipulagsreglugerð er fjallað um efnistök deiliskipulags og settar skýrari reglur um að í deiliskipulagi skuli setja skilmála um nýtingarhlutfall eða tilgreina hámarksbyggingarmagn einstakra lóða.$line$Í upphaflegum ákvæðum afsala einbýlishúsa í Arnarnesi er að finna ákvæði sem í raun jafngilda takmörkunum nýtingarhlutfalls þar sem kveðið er á um að húsegendur byrgi sem minnst útsýni hver fyrir öðrum. Meðalnýtingahlutfall í Arnarnesi er í dagi 0.24, mest 0.51 og minnst 0.17.$line$Í tillögu að deiliskipulagi sem nú er tekin til afgreiðslu er tekið mið af þeim stærðum en þær eru mótandi fyrir núverandi byggðamynstur og yfirbragð hverfisins. Með tillögu um nýtingarhlutfall 0.45 telur skipulagsnefnd að verið sé að koma vel til móts við kröfur sem uppi hafa verið í hópi lóðaeigenda um aukið byggingarmagn. Tillaga um hámarksstærð hins byggða flatar á lóðinni miðar að því að standa vörð um byggðamynstur og yfirbragð hverfisins sem er glæsilegt einbýlishúsahverfi með stórum húsagörðum. Það sjónarmið hefur einnig verði uppi í hópi lóðareigenda.$line$Að athuguðu máli leggur skipulagsnefnd til að hækka ákvæði um byggða flöt úr 30 % í 35 % í tillögu að deiliskipulagi Arnarness og er það í samræmi við ákvæði í nýju deiliskipulagi sambærilegs hverfis Flata sem nýlega hefur verið samþykkt.$line$Skipulagsnefnd lítur svo á að tillagan feli ekki í sér breytingu á kynntri tillögu í grundvallaratriðum og því beri ekki að kynna hana að nýju samkvæmt 4.mgr.41.gr.skipulagslaga nr. 123/2010. $line$Tillögunni vísað til skipulagsstjóra og skipulagshöfundar til úrvinnslu.

Málsnúmer 1401510

12

Holtsbúð, breyting á deiliskipulagi Búða.

Kynnt tillaga að breytingum á aðkomu að Holtsbúð 87 frá Karlabraut þar sem fyrirhugað er að innrétta ungbarnaleikskóla. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissjuviði.

Málsnúmer 1401509

13

Lundaból, breyting á deiliskipulagi Lunda

Kynnt tillaga að breytingum á lóð leikskólans Lundabóls sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við leikskólann. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1312421

14

Stekkjarflöt 14, dsk br Flata.

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Flata sem gerir ráð fyrir flutning á bílastæðum innan lóðar til suðurs.$line$Skilagsnefnd samþykktir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata og vísar til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Stekkjarflatar 12,13, 15, 16 og 17.

Málsnúmer 1401259

15

Hraungata 3-17, útskot byggingarreits

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur bílageymslu stækki um einn metra að lóðarmörkum við Hraungötu.$line$Skipulagsnefnd hafnar tillögunni þar sem að þegar hafi verið gerð breyting á lóðinni þar sem byggingarreitur var stækkaður mikið að götu. Við enda lóðarinnar verður Urriðakotsstígur þar sem gera má ráð fyrir að verði mikil umferð gangandi og hjólandi vegfarenda og er hætt við að blindhorn myndist á þessum stað.

Málsnúmer 1312449

16

Urriðaholt - Losun jarðvegs

Bæjarverkfræðingur kynnti hugmyndir Urriðahholts ehf um losun jarðvegs í landi Urriðakots við golfvöll Odds.