Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag norðurhluta Urriðaholts, dags. 23.01.14.

Málsnúmer 1305509

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

4. fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurhluta Urriðaholts að lokinni kynningu í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga. Tillagan gerir ráð fyrir 66-72 íbúðum í 3 fjölbýlishúsum og leikskólalóð. Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 43.gr. sömu laga er tillagan því samþykkt.

Bæjarráð Garðabæjar

03

43. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Urriðaholt, norðurhluti (að hluta) í samræmi við 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að falla frá lýsingu og forkynningu tillögunnar samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga þar sem að allar meginforsendur tillögunnar liggja fyrir í aðalskipulagi og rammaskipulagi fyrir Urriðaholt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

15. fundur

Lögð fram tillaga að nýju deiliskipulagi, Urriðaholt Norðurhluti sem gerir ráð fyrir 66-72 íbúðum í 3 fjölbýlishúsum og leikskólalóð.

Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem að allar meginforsendur tillögunnar liggja fyrir í aðalskipulagi og rammaskipulagi er fallið frá gerð lýsingar og frá forkynningu tillögunnar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

14. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir tillögu að breytingu að deiliskipulagi fjögurra fjölbýlishúsalóða og leikskólalóðar.

Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

10. fundur

Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts kynnti hugmyndir að breytingum á tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta Urriðaholts. Skipulagsnefnd fagnar því að vikið skuli frá því að færa leikskólalóð upp fyrir Holtsveg enda verður leikskólinn í góðum tengslum við opið svæði umhverfis Urriðavatn eins og rammaskipulag gerir ráð fyrir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

7. fundur

Fulltrúi Urrðiaholts leggur fram tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta Urriðaholts þar sem gert er ráð fyrir 4 fjölbýlishúsum og yrði fjöldi íbúða því samtals 88-96.

Fulltrúi M-lista, Baldur Ó Svavarsson, leggur áherslu á að stærðir íbúða miði að því að bæta framboð á hentugu húsnæði fyrir ungt fólk. Skipulagsnefnd tekur undir þau sjónarmið. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.