Beint í efni

43. fundur

29.10.2013
Bæjarráð Garðabæjar

43. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

29.10.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1310427

01

Bréf UMF Stjörnunnar varðandi áramótabrennu 2013, dags. 22.10.13.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Málsnúmer 1304705

02

Bréf SSH varðandi breytingartillögur á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, vegna endurskoðunar aðalskipulags Reykjavíkur og annarra sveitarfélaga, dags. 21.10.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 1310281

03

Bréf félagsmálastjóra varðandi innra eftirlit með starfsstöðvum er sinna þjónustu við fatlaða, dags. 17.10.13.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.

Málsnúmer 1310479

04

Bréf yfirlæknis Heilsugæslunnar í Garðabæ varðandi starfshlutfall fjölskylduráðgjafa, dags. 24.10.13.

Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.

Málsnúmer 1310428

05

Bréf UMF Stjörnunnar varðandi þorrablót Stjörnunnar 2014, dags. 22.10.13.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Málsnúmer 1310490

06

Bréf Samtakanna í þínum sporum um dag gegn einelti, dags 16.10.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til fjölskyldusviðs og fræðslu- og menningarsviðs.

Málsnúmer 1310491

07

Bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga um fjármál sveitarfélaga, dags. 23.10.13.

Í bréfinu eru kynntar lágmarkskröfur varðandi fjárhagsleg viðmið í rekstri sveitarfélaga ásamt því að fara fram á upplýsingar um fjármálastjórn Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu hvað varðar upplýsingar um fjármálastjórn hjá Garðabæ.

Málsnúmer 1310492

08

Bréf Leikfélagsins Verðanda um styrk vegna söngleiks leikfélags FG 2014, dags. 04.10.13

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Málsnúmer 1301213

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna breytingu á dsk Ása og Grunda Arnarnesvogur FEB, dags. 24.10.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á tillögunni í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1310212

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar miðbær Garðabæjar dsk, efra svæði,tilfærsla íbúða á milli lóða, dags. 24.10.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fallast á að tilfærsla íbúða milli lóða við Garðatorg sé óveruleg breyting á deiliskipulagi miðbæjar - efra svæði samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að grenndarkynning falli niður þar sem breytingin varði ekki aðra en hagsmuni umsækjanda og bæjarins, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.

Málsnúmer 1309702

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna breytingar á dsk vesturhluta Urriðaholts, Hellagata 31, dags. 24.10.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts, vesturhluta vegna lóðarinnar nr. 31 við Hellagötu.

Málsnúmer 1309703

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts,Holtsvegur 51, dags. 24.10.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts, vesturhluta vegna lóðarinnar nr. 51 við Holtsveg.

Málsnúmer 1309700

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar á breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, Hraungata 19-23, 41-45 og 47-51, dags. 24.10.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts, vesturhluta vegna lóðarinnar nr. 19-23, 41-45 og 47-51 við Hraungötu.

Málsnúmer 1212099

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, Hraungata 25-39, dags. 24.10.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts, vesturhluta vegna lóðarinnar nr. 25-39 við Hraungötu.

Málsnúmer 1304582

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, Víkurgata 2, dags. 24.10.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts, vesturhluta vegna lóðarinnar nr. 2 við Víkurgötu.

Málsnúmer 1310111

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, vegna salarhæðar fjölbýlishúsa, dags. 24.10.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts, vesturhluta salarhæðar fjölbýlishúsa.

Málsnúmer 1305509

17

Urriðaholt-Norðurhluti deiliskipulag

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Urriðaholt, norðurhluti (að hluta) í samræmi við 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að falla frá lýsingu og forkynningu tillögunnar samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga þar sem að allar meginforsendur tillögunnar liggja fyrir í aðalskipulagi og rammaskipulagi fyrir Urriðaholt.

Málsnúmer 1303894

18

Bréf Náttúruverndarsamtaka Íslands, Landverndar, Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands og Hraunavina vegan Álftanessvegar, dags. 25.10.13.

Bæjarráð Garðabæjar getur ekki fallist á að verða við erindi Hraunavina o.fl. um að hlutast til um að Vegagerðin fresti öllum framkvæmdum við nýjan Álftanesveg þar til niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir. Bæjarráð leggur áherslu á að framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Garðabæjar. Bæjarráð bendir jafnframt á að það er ekki í hlutverki dómstóla að taka ákvörðun um vegstæði vegarins og því fylgi áframhaldandi framkvæmdum engin áhætta hvað varðar röskun á hrauninu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða stjórn Hraunavina til fundar við bæjarráð til að ræða áherslur og fyrirkomulag samráðs um svæðið samhliða vinnu við endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar. Steinþór Einarsson situr hjá við afgreiðslu málsins. Bæjarstjóri lagði fram bréf Ragnhildar Jónsdóttur, sjáanda, dags. 28. október 2013, þar sem fyrir hönd álfa og huldufólks er farið fram á að ekki verði raskað við álfakirkju og álfabyggð í hrauninu við Álftanesveg.

Málsnúmer 1307042

19

Fjárhagsáætlun 2014

Á fund bæjarráðs mætti fjármálastjóri og gerði grein fyrir drögum að fjárhagsáætlun fyrir árið 2014, 2015 ? 2017. Lögð voru fram drög að framkvæmdaáætlun og farið yfir tillögur um fjárveitingar til viðhaldsframkvæmda. Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 og áætlun fyrir árin 2015 ? 2017 til fyrri umræðu í bæjarstjórn 31. október nk., sbr. 2. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Gert er ráð fyrir að síðari umræða fari fram í bæjarstjórn 5. desember nk.