Tillaga skipulagsstjóra um götuheiti og húsanúmeraröð raðhúsabyggðar við Arnarnesvog.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
17. fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsstjóra um að nafn á nýrri götu við Arnarnesvog verði Unnargrund.
Bæjarráð Garðabæjar
02
4. fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
2. fundur
Lögð fram tilllaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til svæðisins neðan Sjávargrundar og útivistarsvæðis við Arnarnesvog að lokinni kynningu í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga. Tillagan gerir ráð fyrir 30 raðhúsaeiningum á einni hæð. Tillagan var í kynningu frá 15.nóvember til 27.desember 2013. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 43.gr. sömu laga er tillagan því samþykkt með 3 atkvæðum. Sigríður Dís Guðjónsdóttir og Baldur Ó. Svavarsson greiða ekki atkvæði með tillögunni. Vegna ábendinga sem fram komu í forkynningu frá eigendum Selskarðs er vísað til fyrri svara bæjarstjórnar vegna deiliskipulagsáætlana í Garðalandi.$line$Baldur Ó. Svavarsson óskaði eftir því að eftirfarandi yrði fært til bókar: " Vara enn við þessari aðgerð. Hér er of hratt farið og of mörgum spurningum ósvarað. Vísa til fyrri bókana."
Bæjarráð Garðabæjar
04
43. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á tillögunni í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
15. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til svæðisins neðan Sjávargrundar og útivistarsvæðis við Arnarnesvog. Tillagan gerir ráð fyrir 30 raðhúsaeiningum. Tillagan var í forkynningu frá 25.september til 18.október. Kynningarfundur var haldinn í Flataskóla þann 2.október og var hann vel sóttur. 3 erindi með ábendingum bárust og voru þær lagðar fram. Í samræmi við ábendingu sem fram kom á íbúafundi er unnið að því að gera hljóðvistarúttekt á hugsanlegum áhrifum hljóðvarna neðan við Hafnarfjarðarveg á byggð í Silfurtúni. Fyrstu niðurstöður benda til þess að engin áhrif séu af gerð hljóðmanar eins og tillagan gerir ráð fyrir. Úttekt á hljóðvist skal liggja fyrir við kynningu tillögunnar.

Meirihluti skipulagsnefndar heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Sigríður Dís Guðjónsdóttir og Baldur Ó. Svavarsson greiða atkvæði á móti tillögunni.

Bæjarráð Garðabæjar
06
27. fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýst verði til kynningar, samkvæmt 1. mgr. 40. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga, tillaga um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir að 30 raðhúsaeiningar rísi á svæðinu með aðkomu frá Sjávargrund. Tillagan skal kynnt á íbúafundi áður en skipulagsnefnd tekur tillöguna til endanlegrar afgreiðslu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
9. fundur

Skipulagsstjóri kynnti tillögur að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til svæðisins fyrir neðan Sjávargrund (Alviðru) og útivistarsvæðis að Arnarneslæk. Einar Ingimarsson arkitekt er höfundur tillögunnar.

Tillagan gerir ráð fyrir því að 30 raðhúsaeiningar rísi á svæðinu með aðkomu um Sjávargrund. Meirihluti skipulagsnefndar heimilar forkynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.greinar og 4.mgr. 40.gr. Sigríður Dís Guðjónsdóttir greiðir atkvæði á móti og Baldur Svavarsson situr hjá. Boða skal til íbúafundar um tillöguna í byrjun september og skal almenningi gefinn kostur að koma með ábendingar að loknum kynningarfundi og áður en skipulagsnefnd fjallar um málið að nýju. Gera skal ráð fyrir hljóðvörnum meðfram Vífilstaðavegi og gera skal sneiðmynd sem nær í gegnum fyrirhugaða byggð, hljóðmön við Hafnarfjarðarveg og hús í Silfurtúni.

Baldur Svavarsson lagði fram eftirfarandi bókun:

Vegna framkominna hugmynda um íbúðasvæði fyrir aldraða vill undirritaður leggja fram eftirfarandi bókun : Hverfið er að mörgu leyti snoturt og ágætlega leyst. Nú þegar liggur hins vegar fyrir samþykkt deiliskipulagstillaga fyrir nákvæmlega samskonar byggð að Hleinum við DAS. Lagt er til að það svæði verði fyrst byggt upp og klárað áður en ráðist er í þessa framkvæmd. Undirritaður hefur verulegar áhyggjur af nánd þessa hverfis við Hafnarfjarðarveg og við væntanleg mislæg gatnamót á mótum Vífilsstaðvegar og Hafnarfjarðarvegar. Umferð um þetta vegakerfi á aðeins eftir að aukast og magnast á komandi árum. Bæjaryfirvöld hafa áður brennt sig á að byggja fyrst og fara í vegaframkvæmdir síðar. Ljóst er af skilmálum, að hljóðvist verður erfið og mun krefjast sérlausna við hönnun bygginga í hverfinu. Hljóðmön sem sannarlega þarf að koma fyrir milli væntanlegrar byggðar og Hafnarfjarðarvegar og gert er ráð fyrir í skipulagsstillögunni, mun mjög líklega hafa áhrif til verri vegar fyrir hljóðvist í Silfurtúnshverfi (endurkast). Það verði skoðað sérstaklega. Húsin sem næst standa formlegu brennustæði bæjarins eru aðeins í um 100m fjrlægð frá stæðinu. Það gæti leitt til kröfu um annað brennustæði síðar. Kannað verði með Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins hvort þessi fjarlægð sé ásættanleg. Samhliða þessum sérstöku aðgerðum og skipulagsáætlunum fyrir valinn hluta bæjarbúa, verði hugað að byggð og búsetuúrræðum fyrir unga Garðabæinga. Skortur er á minni og ódýrari íbúðum þegar horft er til nýbyggingarsvæða í bænum. Hugum að unga fólkinu. Fulltrúi M-lista FÓLKSINS í bænum í skipulagsnefnd.

Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
7. fundur

Skipulagsstjóri kynnti drög að tillögu að raðhúsabyggð við Sjávargrund hjá Alviðru. Gert er ráð fyrir 30 íbúðum á einni hæð, þar af verða 5 hús ætluð fötluðum.

Fyrirhuguð byggð liggur þétt að skipulögðu útivistarsvæði og leggur skipulagsnefnd áherslu á að byggðin falli vel að útivistarsvæðinu. Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að fullvinna tillögu að deiliskipulagi sem byggir á kynntum drögum hvað varðar fjölda eininga og afmörkun svæðis. Vinna skal út frá því að sem minnst landsvæði fari undir byggðina og að hugað sé vel að hljóðvörnum og áhrifum þeirra á aðliggjandi byggð.

Sigríður Dís Guðjónsdóttir og Baldur Ó.Svavarsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
4. fundur

Skipulagsstjóri kynnti hugmydir um útfærslu byggðar 1.hæðar raðhúsa á opnu svæði norðan og austan við Sjávargrund.