9. fundur
9. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
24.06.2013
Kl. 16:15 - 18:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stefán Snær Konráðsson - formaður
- Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1210444
01
Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 8.fundar skipulgsnefndar frá 20.júní lögð fram. Engar athugasemdir.

Málsnúmer 1301213
02
Breyting á dsk Ása og Grunda Arnarnesvogur FEB

Skipulagsstjóri kynnti tillögur að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til svæðisins fyrir neðan Sjávargrund (Alviðru) og útivistarsvæðis að Arnarneslæk. Einar Ingimarsson arkitekt er höfundur tillögunnar.

Tillagan gerir ráð fyrir því að 30 raðhúsaeiningar rísi á svæðinu með aðkomu um Sjávargrund. Meirihluti skipulagsnefndar heimilar forkynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.greinar og 4.mgr. 40.gr. Sigríður Dís Guðjónsdóttir greiðir atkvæði á móti og Baldur Svavarsson situr hjá. Boða skal til íbúafundar um tillöguna í byrjun september og skal almenningi gefinn kostur að koma með ábendingar að loknum kynningarfundi og áður en skipulagsnefnd fjallar um málið að nýju. Gera skal ráð fyrir hljóðvörnum meðfram Vífilstaðavegi og gera skal sneiðmynd sem nær í gegnum fyrirhugaða byggð, hljóðmön við Hafnarfjarðarveg og hús í Silfurtúni.

Baldur Svavarsson lagði fram eftirfarandi bókun:

Vegna framkominna hugmynda um íbúðasvæði fyrir aldraða vill undirritaður leggja fram eftirfarandi bókun : Hverfið er að mörgu leyti snoturt og ágætlega leyst. Nú þegar liggur hins vegar fyrir samþykkt deiliskipulagstillaga fyrir nákvæmlega samskonar byggð að Hleinum við DAS. Lagt er til að það svæði verði fyrst byggt upp og klárað áður en ráðist er í þessa framkvæmd. Undirritaður hefur verulegar áhyggjur af nánd þessa hverfis við Hafnarfjarðarveg og við væntanleg mislæg gatnamót á mótum Vífilsstaðvegar og Hafnarfjarðarvegar. Umferð um þetta vegakerfi á aðeins eftir að aukast og magnast á komandi árum. Bæjaryfirvöld hafa áður brennt sig á að byggja fyrst og fara í vegaframkvæmdir síðar. Ljóst er af skilmálum, að hljóðvist verður erfið og mun krefjast sérlausna við hönnun bygginga í hverfinu. Hljóðmön sem sannarlega þarf að koma fyrir milli væntanlegrar byggðar og Hafnarfjarðarvegar og gert er ráð fyrir í skipulagsstillögunni, mun mjög líklega hafa áhrif til verri vegar fyrir hljóðvist í Silfurtúnshverfi (endurkast). Það verði skoðað sérstaklega. Húsin sem næst standa formlegu brennustæði bæjarins eru aðeins í um 100m fjrlægð frá stæðinu. Það gæti leitt til kröfu um annað brennustæði síðar. Kannað verði með Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins hvort þessi fjarlægð sé ásættanleg. Samhliða þessum sérstöku aðgerðum og skipulagsáætlunum fyrir valinn hluta bæjarbúa, verði hugað að byggð og búsetuúrræðum fyrir unga Garðabæinga. Skortur er á minni og ódýrari íbúðum þegar horft er til nýbyggingarsvæða í bænum. Hugum að unga fólkinu. Fulltrúi M-lista FÓLKSINS í bænum í skipulagsnefnd.

Málsnúmer 1306402
03
Dalprýði 11 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem felst í því að byggingarreitur stækkar lítillega til vesturs sem nemur 81 cm.

Ástæða þess er sú að þegar að tillaga einbýlishúsi að Dalprýði 11 var samþykkt árið 2008 var gert ráð fyrir húsi sem væri 467 m2 að flatarmál um 1000 m3 að rúmmáli. Um sama leyti voru samþykktar teikningar af húsi númer 13 sem lagaði sig því að stærra húsi en nú er ráðgert að reisa á lóð nr.11. Sú tillaga sem nú hefur verið samþykkt gerir ráð fyrir húsi sem er 243 m2 og 666 rúmmetrar. Veggur sem er við pall sunnan húss númer 13 virkar því allhár og því er óskað eftir því að hnika til húsi sem þegar hefur verið samþykkt um 1 m til suðurs.

Skipulgsnefnd metur breytinguna sem óverulega og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Dalprýði 13, og 9a og 9b.

Baldur Ó Svavarsson víkur af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1306376
04
Hraunhólar 20, umsókn um dsk breytingu.

Lögð fram ósk lóðarhafa að Hraunhólum 20 um breytingar á lóðarmörkum að göngustíg við hitaveitstokk. Útfærsla lóðar hefur lagað sig að legu stokksins fremur en lóðarmörkum í deiliskipulagi. Nú er liggja fyrir hugmyndir um palla og skjólveggi sem ná út fyrir lóðarmörk.

Skipulagsnefnd leggur til að lóðarmörk lagi sig að hitaveitstokk og göngustíg og vísar tillögunn til grenndakynningar sem óverulegri breyting á deiliskipulagi Hraunsholts eystra. Grenndarkynna skal eigendum raðhúsalengjunnar og Hraunhóla 23 og 18.

Málsnúmer 1305949
05
Umsókn um byggingarleyfi - Hliðsvegur 1 matsh. 020101

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á baðhúsi sem gerir ráð fyrir 4 gistiherbergjum með baði.

Í gildi er deiliskiplag sem gerir ráð fyrir veitingahúsi að Hliði en tekur ekki sérstaklega á gistingu. Skipulagsnefnd mælir með því að lögð verði fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hliðs sem gerir ráð fyrir því að heimilt verði að reka gistingu fyrir ferðamenn að Hliði.

Málsnúmer 1305948
06
Umsókn um byggingarleyfi- Hliðsvegur 1 matsh. 010101

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á Vetingahúsi sem gerir ráð fyrir 2 gistiherbergjum með baði.

Í gildi er deiliskiplag sem gerir ráð fyrir veitingahúsi að Hliði en tekur ekki sérstaklega á gistingu. Skipulagsnefnd mælir með því að lögð verði fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hliðs sem gerir ráð fyrir því að heimilt verði að reka gistingu fyrir ferðamenn að Hliði.

Málsnúmer 1306040
07
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.

Lögð fram verkefnislýsing svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2015-2040 sem unnin hefur verið á vegum svæðisskipulagsnefndar og svæðiskipulagsstjóra. Í lýsingu er gert grein fyrir hvaða áherslu svæðisskipulagsnefnd hefur við gerð svæðisskipulagsins, forsendum þess og fyrirliggjandi stefnu og hvernig kynningu verði háttað gagnvart almenningi og öðrum hagsmunaaðilum. Jafnframt er lýsing sameinuð gerð matslýsingar vegna samráðs við Skipulagsstofnun um umfang og áherslur í umhverfismati svæðisskipulagsgerðarinnar. Gert er ráð fyrir að nýtt svæðisskipulag liggi fyrir í lok næsta árs.

Með vísan í 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 6.gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana samþykkir skipulagsnefnd lýsinguna.

Málsnúmer 2010010083
08
Hávaðakort og skrá yfir stóra vegi skv. reglugerð 1000/2005

Að ósk bæjarverkfræðings samþykkir nefndin að bæta við þessu máli við dagsskrá fundarins. Bæjarverkfræðingur kynnti skýrslu um aðgerðaráætlun gegn hávaða 2013-2018 sem unnin hefur verið á vegum Garðabæjar og Vegagerðarinnar.

Tilskipun Evrópusambandsins um umhverfishávaða (2002/49/EC) var innleidd á Íslandi með reglugerð um kortlagningu hávaða og aðgerðaráætlanir nr.1000/2005. Samkvæmt reglugerðinni skal kortleggja hávaða og útbúa aðgerðaáætlanir fyrir þéttbýlissvæði með yfir 100.000 íbúa og vegna hávaða frá stórum vegum með árdagsumferð yfir 8000 ökutæki (3milljónir ökutækja á ári) Aðgerðaráætlunin þjónar hlutverki fyrir Garðabæ og íbúa hans ásamt því að vera skilagagn til Umhverfisstofnunar og Evrópusambandsins. Aðgerðaráætlunin er unnin út frá niðurstöðum kortlagningar hávaða frá árinu 2012.

Skipulagsnefnd lýsir yfir ánægju með skýrsluna þar sem safnað hefur verið saman upplýsingum um stöðu umferðarhávaða og fyrirhugaðra aðgerða á næstu árum. Skýrslan verður gott innlegg í vinnu við gerð aðalskipulags sem nú er að hefjast.