Bréf Skipulagsstofnunar varðandi svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins ásamt þróunaráætlun 2015-2018, dags. 30.06.15.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
27. (1695). fundur
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar þar sem fram kemur að stofnunin hefur staðfest nýtt svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið. Við gildistöku þess falla úr gildi svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 og svæðisskipulag vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 1999.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
7. fundur
Lögð fram til afgreiðslu tillaga svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um nýtt svæðisskipulag.$line$$line$Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir tillögu svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins að nýju svæðisskipulagi eins og tillagan ásamt umhverfisskýrslu var endanlega afgreidd á fundi nefndarinnar sem haldinn var 10. apríl 2015. Afgreiðsla bæjarstjórnar á samþykkt tillögunar er gerð á grundvelli 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Bæjarráð Garðabæjar
03
16 (1684). fundur
Bæjarráð samþykkir að vísa afgreiðslu tillögunnar til bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarastjórn að tillaga að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2049 verði samþykkt í samræmi við 2.mgr. 25.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og 9.gr.laga um umhverfismat áætlana nr.105/2006 með þeim breytingum sem svæðisskipulagsnefnd leggur til.
Bæjarráð Garðabæjar
05
40. fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins að nýju svæðisskipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið samkvæmt 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.$line$$line$Bæjarráð tekur undir sjónarmið skipulagsnefndar um að beina því til bæjarstjórnar að áður en tillagan verður tekin til afgreiðslu í sveitarstjórnum samkvæmt 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga liggi fyrir með hvaða hætti fjárveitingar ríkisvaldsins tengist skilgreiningum svæðisskipulagstillögunnar á meginstofnbrautum, stofngötum, borgargötum og borgarlínu.$line$Skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt gildandi aðalskipulagi Garðabæjar er gert ráð fyrir mislægum gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar og að Hafnarfjarðarvegur verði i lokuðum stokki frá þeim gatnamótum og að gatnamótum vegarins við Lækjarfit og Lyngás. Skipulagsnefnd lítur svo á að sú uppbygging geti verið í anda fyrirliggjandi svæðisskipulagstillögu þar sem miðstöð almenningssamgangna væri ofan á stokknum en meginþungi bílaumferðar væri í stokknum. Jafnframt áskilur skipulagsnefnd sér rétt til þess að gera athugasemdir við einstök efnisatriði og orðalag í skipulagstillögunni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
16. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar leggur til við bæjarstjórn að heimilað verði að auglýsa tillögu Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins í samræmi við 3.mgr.33.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.$line$Skipulagsnefnd beinir því til bæjarstjórnar að áður en tillagan verður lögð fram í sveitarstjórnum til samþykktar að loknu auglýsingarferli liggi fyrir með hvaða hætti fjárveitingar ríkisvaldsins tengist skilgreiningum svæðisskipulagstillögunnar á meginstofnbrautum, stofngötum, borgargötum og borgarlínu.$line$Skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt gildandi aðalskipulagi Garðabæjar er gert ráð fyrir mislægum gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar og að Hafnarfjarðarvegur verði i lokuðum stokki frá þeim gatnamótum og að Lyngási. Skipulagsnefnd lítur svo á að sú uppbygging geti verið í anda fyrirliggjandi svæðisskipulagstillögu þar sem miðstöð almenningssamgangna væri ofan á stokknum en meginþungi bílaumferðar væri í stokknum. Jafnframt áskilur skipulagsnefnd sér rétt til þess að gera athugasemdir við einstök efnisatriði og orðalag í skipulagstillögunni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
14. fundur
Hrafnkell Á. Proppé svæðisskipulagsstjóri kynnti tillögu að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins sem svæðisskipulagsnefnd hefur samþykkt að setja í auglýsingu í samræmi við 3.mgr. 23.gr.Skipulagslaga og hefur verið send til hlutaðeigandi sveitarstjórna til afgreiðslu. Fundinn var einnig viðstaddur Þorsteinn Hermannsson sem leitt hefur faghóp um samgöngur við svæðisskipulagsgerðina.$line$Í umræðum og fyrirspurnum að lokinni kynningu var tillagan rædd í heild sinni og áhrif hennar á skipulagsmál Garðabæjar sérstaklega hvað varðar umferðarmál, legu stofnbrauta og uppbyggingu mannvirkja þeim tengd.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
13. fundur
Tillaga að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins ásamt umhverfisskýrslu lögð fram en svæðisskipulagsnefnd samþykkt þann 22.ágúst síðastliðinn að kynna tillöguna ásamt umhverfisskýrslu skv. 3.mgr. 23.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sem er lokastig kynningar og skv. 1.mgr. 7.gr. laga um mat á umhverfisáhrifum áætlana nr. 105/2006. Óskað er eftir því að aðildarsveitarfélögin staðfesti þá ákvörðun fyrir 13.október. Formaður skipulagsnefndar leggur til að haldinn verði sérstakur fundur í skipulagsnefnd þar sem að svæðisskipulagið verði tekið til umfjöllunar.
Bæjarráð Garðabæjar
09
33. fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Bæjarráð Garðabæjar
10
20. fundur
Steinþór Einarsson og Stefán Snær Konráðsson, fulltrúar Garðabæjar í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins gerðu grein fyrir þeirri afgreiðslu nefndarinnar um að fallast á fyrir sitt leyti á tillögu að breytingu á svæðisskipulaginu en að vísa því til næstu nefndar að taka formlega ákvörðun um auglýsingu á kynningu tillögunnar.
Bæjarráð Garðabæjar
11
16. fundur
Bæjarstjóri kynnti stöðu mála varðandi kynningu og vinnslu svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins en formlegum kynningarferli á vinnslustigi lauk 22. apríl sl. Tillagan ásamt athugasemdum sem borist hafa er nú til áframhaldandi umræðu í svæðisskipulagsnefnd.$line$$line$Bæjarstjóri upplýsti að fyrirhugaður er fundur í stjórn SSH með svæðisskipulagsstjóra, ráðgjöfum svæðisskipulagsins og fulltrúum vegagerðarinnar til að ræða nánar um samgöngumál á svæðinu.$line$$line$Samkvæmt 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga 123/2010 skal að lokinni kynningu leggja endanlega svæðisskipulagstillögu fyrir hlutaðeigandi sveitarstjórnir til samþykktar.
Bæjarráð Garðabæjar
13
27. fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga tillögu skipulagsnefndar um að samþykkja verkefnalýsingu sem tekin hefur verið saman vegna vinnu við gerð svæðisskipulags fyrir höfuðborgarsvæðið.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

<o:p> </o:p>

Skipulagsnefnd Garðabæjar
14
9. fundur

Lögð fram verkefnislýsing svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2015-2040 sem unnin hefur verið á vegum svæðisskipulagsnefndar og svæðiskipulagsstjóra. Í lýsingu er gert grein fyrir hvaða áherslu svæðisskipulagsnefnd hefur við gerð svæðisskipulagsins, forsendum þess og fyrirliggjandi stefnu og hvernig kynningu verði háttað gagnvart almenningi og öðrum hagsmunaaðilum. Jafnframt er lýsing sameinuð gerð matslýsingar vegna samráðs við Skipulagsstofnun um umfang og áherslur í umhverfismati svæðisskipulagsgerðarinnar. Gert er ráð fyrir að nýtt svæðisskipulag liggi fyrir í lok næsta árs.

Með vísan í 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 6.gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana samþykkir skipulagsnefnd lýsinguna.

Bæjarráð Garðabæjar
15
24. fundur

Bæjarráð vísar bréfinu ásamt verkefnislýsingu svæðisskipulagsstillögu til umfjöllunar skipulagsnefndar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>