40. fundur
40. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
21.10.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Bréf hestamannafélagsins Spretts varðandi rekstrarstyrk vegna ársins 2015, dags. 14.10.14.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til nánari skoðunar við afreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015 og til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.
02
Bréf forsætisráðuneytisins varðandi upplýsingar um framkvæmd verðhækkana, dags. 10.10.14.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að svara erindinu.
03
Bréf Specialisterne á Íslandi varðandi samstarfssamning, dags. í okt. ´14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015 og til umfjöllunar fjölskylduráðs.
04
Bréf Skógræktarfélags Íslands varðandi ályktun frá aðalfundi um skógrækt í lúpínubreiðum, dags. 06.10.14.
Lagt fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Holtsveg 37 og 39, deiliskipulagsbreyting - Vesturhluti Urriðaholts, dags. 15.10.14.
Bæjarráð samþykkir að tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts varðandi lóðina við Holtsveg 37 og 39 verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu samkvæmt 3. mgr. 41. skipulagslaga nr. 123/2010 en engar athugasemdir voru gerðar við tillöguna í auglýstum athugasemdarfresti.$line$$line$Bæjarráð bendir á að samkvæmt samningi um uppbyggingu Urriðaholts, dags. 20. apríl 2007 ber lóðarhafa að greiða sérstakt framlag til skólamála vegna fjölgunar íbúða sem nemur kr. 698.818 á hverja íbúð miðað við BVT í október 2014.
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Holtsveg 8-12, deiliskipulagsbreyting vegna byggingarreita, dags. 15.10.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá grenndarkynningu samkvæmt ákvæði 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga við afgreiðslu á byggingarleyfi hússins við Hellagötu 8-12 þar sem um óveruleg frávik er að ræða frá deiliskipulagsskilmálum, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. sömu laga.
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040, dags. 15.10.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins að nýju svæðisskipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið samkvæmt 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.$line$$line$Bæjarráð tekur undir sjónarmið skipulagsnefndar um að beina því til bæjarstjórnar að áður en tillagan verður tekin til afgreiðslu í sveitarstjórnum samkvæmt 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga liggi fyrir með hvaða hætti fjárveitingar ríkisvaldsins tengist skilgreiningum svæðisskipulagstillögunnar á meginstofnbrautum, stofngötum, borgargötum og borgarlínu.$line$Skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt gildandi aðalskipulagi Garðabæjar er gert ráð fyrir mislægum gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar og að Hafnarfjarðarvegur verði i lokuðum stokki frá þeim gatnamótum og að gatnamótum vegarins við Lækjarfit og Lyngás. Skipulagsnefnd lítur svo á að sú uppbygging geti verið í anda fyrirliggjandi svæðisskipulagstillögu þar sem miðstöð almenningssamgangna væri ofan á stokknum en meginþungi bílaumferðar væri í stokknum. Jafnframt áskilur skipulagsnefnd sér rétt til þess að gera athugasemdir við einstök efnisatriði og orðalag í skipulagstillögunni.
08
Umsókn um byggingarleyfi - Kinnargata 15
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar parhúss á lóðinni við Kinnargötu 15.
09
Umsókn um byggingarleyfi - Kinnargata 17
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar parhúss á lóðinni við Kinnargötu 15.
10
Bréf Skipulagsfræðingafélags Íslands varðandi Skipulagsverðlaun 2014, dags. 11.10.14.
Lagt fram.
11
Bréf Leikskólans Sjálands varðandi samnings vegna leikskólans, dags. 13.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
12
Auglýsing um lóð fyrir kaffihús við Arnarnesvog.
Bæjarráð samþykkir að vísa til skipulagsnefndar að skoða nánar skipulagsskilmála fyrir viðkomandi svæði.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa að auglýsa lóðina til byggingar og reksturs veitingahúss.
13
Opnun tilboða í jarðvinnu vegna byggingar Urriðaholtsskóla.
Eftirfarandi tilboð bárust við opnun tilboða í jarðvinnu vegna byggingar Urriðaholtsskóla.$line$$line$Ístak Íslands ehf. kr. 33.240.802$line$$line$Jökulfell ehf. kr. 37.890.000$line$$line$GT hreinsun ehf kr. 39.010.000$line$$line$Hálsafell ehf. kr. 42.900.000$line$$line$Borgarverk ehf. kr. 45.310.000$line$$line$Óskaverk ehf. kr. 46.000.000$line$$line$Íslenskir aðalverktakar hf. kr. 48.084.259$line$$line$Jarðval ehf. kr. 48.761.400$line$$line$Kamina ehf. kr. 51.906.000$line$$line$Loftorka Reykjavík ehf. kr. 54.040.000$line$$line$Dráttarbílar ehf. kr. 67.050.600$line$$line$Bæjarráð samþykkir tilboð lægstbjóðenda Ístaks Íslands ehf. og felur bæjarverkfræðingi að leita samninga við félagið á grundvelli tilboð þess.
14
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015.
Bæjarstjóri kynnti drög að tillögu um gjaldstig útsvars og fasteignaskatta og ræddi hugmyndir um breytingar á gjaldskrám. $line$$line$Bæjarstjóri kynnti tillögu að dagskrá vegna heimsókna bæjarráðs í stofnanir í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.