Beint í efni

Bréf félagsmálastjóra varðandi samstarfssamningur við Specialisterne á Íslandi, dags. 16.03.15.

Málsnúmer 1410196

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

12. (1680). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu fjölskylduráðs að í stað samstarfssamnings með föstu framlagi verði gerður samningur við félagið í tenglum við þá einstaklinga úr Garðabæ sem þar dvelja hverju sinni.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

2. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1410196 - samstarfssamningur við Specialisterne á Íslandi. Specialisterne á Íslandi er sjálfseignarstofnun sem vinnur að því að hjálpa einstaklingum á einhverfurófinu til sjálfshjálpar og bjóða í því skyni upp á sérstakt mats- og þjálfunarferli. Specialisterne hafa óskað eftir samstarfssamningi við Garðabæ. Málið rætt. $line$Fjölskylduráð leggur til við bæjarráð að í stað samstarfssamnings með föstu framlagi geri Garðabær samninga við Specialisterne í tengslum við þá einstaklinga úr Garðabæ sem þar dvelja hverju sinni.

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

8. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1410196, bréf frá sjálfseignarstofnuninni Specialisterne dags. október 2014, sem bæjarráð vísar til umfjöllunar fjölskylduráðs. Fjölskylduráð fjallar um málið. Fjölskylduráð mælir með því að málið verði skoðað nánar og frekari upplýsinga verði aflað.

Bæjarráð Garðabæjar

04

40. fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015 og til umfjöllunar fjölskylduráðs.