Beint í efni

8. fundur

27.11.2014
Fjölskylduráð Garðabæjar

8. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

27.11.2014

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - formaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Anna Karin Juliussen - félagsráðgjafi

Ritari

  • Bergljót Sigurbjörnsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1409324

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015

Tekið er fyrir mál nr. 1409324, fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015. Félagsmálastjóri kynnir fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs árið 2015. Nefndin ræðir áætlunina.

Málsnúmer 1407224

02

Umsókn um leyfi sem fósturforeldri.

Tekið er fyrir mál nr. 1407224, umsókn um leyfi sem fósturforeldri. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 1409161

03

Umsókn um fjárhagsaðstoð.

Tekið er fyrir mál nr. 1409161, umsókn fjárhagsaðstoð. Guðrún Hrefna Sverrisdóttir, félagsráðgjafi, situr fundinn undir þessum lið. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 1409456

04

Umsókn um fjárhagsaðstoð vegna náms.

Tekið er fyrir mál nr. 1409456, umsókn fjárhagsaðstoð. Guðrún Hrefna Sverrisdóttir, félagsráðgjafi, situr fundinn undir þessum lið. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 1410303

05

Ályktanir fulltrúafundar Þroskahjálpar 18.10.2014

Tekið er fyrir mál nr. 1410303 Ályktanir fulltrúafundar Þroskahjálpar 18.10.2014 varðandi þjónustu við fatlað fólk, sem bæjarráð vísar til kynningar í fjölskylduráði. Ályktunin er lögð fram og rædd.

Málsnúmer 1410196

06

Samstarfssamningur við Specialisterne á Íslandi

Tekið er fyrir mál nr. 1410196, bréf frá sjálfseignarstofnuninni Specialisterne dags. október 2014, sem bæjarráð vísar til umfjöllunar fjölskylduráðs. Fjölskylduráð fjallar um málið. Fjölskylduráð mælir með því að málið verði skoðað nánar og frekari upplýsinga verði aflað.

Málsnúmer 1411238

07

Upplýsingar um félagslegar leiguíbúðir

Tekið er fyrir mál nr. 1411238, félagslegar leiguíbúðir. Edda Tryggvadóttir, húsnæðisfulltrúi situr fundinn undir þessum lið. Húsnæðisfulltrúi fer yfir og kynnir stöðuna varðandi félagslegar leiguíbúðir. Málið er rætt.