Beint í efni

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015

Málsnúmer 1409324

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

19. (783). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða eftirfarandi viðauka nr. 20 við fjárhagsáætlun 2015.

Hækkun launaliða vegna nýrra kjarasamninga.
Stjórnendur í grunnskóla kr. 14.000.000
Hjúkrunarfræðingar Ísafold kr. 4.000.000
STAG (Starfsmannafélag Garðabæjar) kr. 124.000.000
Félag leikskólakennara kr. 28.000.000
Stjórnendur í leikskólum kr. 14.000.000
Hlíf - verkalýðsfélag kr. 4.000.000

Útgjaldaauka mætt með hækkun útsvars
Staðgreiðsla útsvars kr. 188.000.000

Bæjarráð Garðabæjar

02

48. (1716). fundur

Fjármálstjóri gerði grein fyrir viðauka 20 við fjárhagsáætlun 2015 sem er tilkominn vegna útgjalda í tengslum við hækkun launa samkvæmt nýgerðum kjarasamningum

Stjórnendur í grunnskóla 14.000.000
Hjúkrunarfræðingar Ísafold 4.000.000
STAG (Starfsmannafélag Garðabæjar) 124.000.000
Félag leikskólakennara 28.000.000
Stjórnendur í leikskólum 14.000.000
Hlíf - verkalýðsfélag 4.000.000

Útgjaldaauka mætt með hækkun útsvars

Staðgreiðsla útsvars 188.000.000

Bæjarráð vísar viðaukanum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

17. (781). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

17. (781). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

05

44. (1712). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði nánari grein fyrir stöðu málaflokka samkvæmt yfirliti fyrir tímabilið janúar - október 2015.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

06

43. (1711). fundur

Bæjarverkfræðingur kynnti stöðu framkvæmda við endurnýjun gangstétta við Garðaflöt og framkvæmdir á vegum Orkuveitu Reykjavíkur á skólasvæði við Ásgarð.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

15. (779). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2015 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 5 Ísafold, hjúkrunarheimili kr. 23.283.552
Viðauki 6 Akstur fatlaðra kr. 25.000.000
Viðauki 7 Niðurgreiðsla á skólamat kr. 15.000.000
Viðauki 8 Félagsmiðstöðin Klakinn kr. 3.200.000
Viðauki 9 Sumarstörf kr. 51.000.000
Viðauki 10 Fjárhagsaðstoð kr. 10.000.000
Viðauki 11 Frekari liðveisla kr. 30.000.000
Viðauki 12 Félagsstarf aldraðra kr. 4.000.000
Viðauki 13 Sambýlið Sigurhæð kr. 3.000.000
Viðauki 14 Félagsleg heimaþjónusta kr. 15.000.000
Viðauki 15 Laun kennara kr. 82.000.000
Viðauki 15 Varasjóður kr. -100.000.000
Viðauki 16 Fasteignaskattur, lækkun v/lagabreyt.kr. 38.000.000
Viðauki 16 Hækkun útsvars kr. -150.000.000
Viðauki 17 Sjálandsskóli, húsaleiga (nettó) kr. 0

Ofangreindum viðaukum nr. 5 - 17 skal mætt með lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 49.283.552.


Bæjarráð Garðabæjar

08

38. (1706). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, og gerði grein fyrir tillögu að viðaukum nr. 5-17 við fjárhagsáætlun 2015.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2015 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 6 Akstur fatlaðra 25.000.000
Viðauki 7 Niðurgreiðsla á skólamat 15.000.000
Viðauki 8 Félagsmiðstöðin Klakinn 3.200.000
Viðauki 9 Sumarstörf 51.000.000
Viðauki 10 Fjárhagsaðstoð 10.000.000
Viðauki 11 Frekari liðveisla 30.000.000
Viðauki 12 Félagsstarf aldraðra 4.000.000
Viðauki 13 Sambýlið Sigurhæð 3.000.000
Viðauki 14 Félagsleg heimaþjónusta 15.000.000
Viðauki 15 Laun kennara 82.000.000
Viðauki 15 Varasjóður -100.000.000
Viðauki 16 Fasteignaskattur, lækkun v/lagabreyt. 38.000.000
Viðauki 16 Hækkun útsvars -150.000.000
Viðauki 17 Sjálandsskóla ? húsaleiga (nettó) 0

Ofangreindum viðaukum nr. 6 ? 17 skal mætt með lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 26.000.000.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

12. (776). fundur

Gjaldskrá skólamálsverða í grunnskólum samþykkt með átta atkvæðum (SHJ,ÁHJ,SDÞ,GVG,BF,SBG,VJ,MG) gegn þremur (SE,HJJ,BÓS).

Bæjarstjórn Garðabæjar

10

12. (776). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

12. (776). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

12. (776). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 430.000.000 að nafnvirði, verðtryggt með 2,90% ávöxtunarkröfu sem jafngildir markaðsvirði að fjárhæð kr. 360.187.441.
Bæjarstjórn samþykkir að fara þess á leit að skuldabréfaflokkur með auðkenninu GARD 13 1 og ISIN nr. IS0000022689 verði aukinn um kr. 470.000.000 þ.e. um samsvarandi fjölda eininga en nafnverðseining er kr. 1. Vísað er til heimildar í útgáfusamningi, dags. 8. janúar 2013. Einnig er vísað til útgáfulýsingar dags. 8. janúar 2013. Áður hafa verið gefnar út kr. 1.767.000.000 og verður flokkurinn því að fjárhæð kr. 2.237.000.000 eftir hækkunina. Skuldabréfaflokkur þessi er þegar skráður á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands).
Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2015 (2016-208) sem samþykkt var í bæjarstjórn 4. desember 2014.

Bæjarráð Garðabæjar

13

33. (1701). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri ásamt Ellert Hlöðverssyni og Ingvari Arnarssyni frá Íslandsbanka.

Lögð fram tilboð er bárust í skuldabréfaútboði Garðabæjar vegna lántöku allt að kr. 470.000.000

Bæjarráð samþykkir að heimila bæjarstjóra að semja um lántöku allt að fjárhæð kr. 430.000.000 verðtryggt með 2,90 % vöxtum. Um er að ræða viðbót við áður útgefinn skuldabréfaflokk GARD -13.1. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

14

33. (1701). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir málaflokkayfirliti fyrir tímabilið janúar-júní 2015.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

15

31. (1699). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, og gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun 2015 vegna rekstur Ísafoldar hjúkrunarheimilis. Viðaukinn er tilkomin þar sem við fjárhagsáætlun var ekki gert ráð fyrir rekstri Ísafoldar, hjúkrunarheimilis nema til 31. ágúst 2015.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2015 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 5 kr. 23.283.552 Ísafold, hjúkrunarheimili-almennur rekstur

Ofangreindum viðauka nr. 5 skal mætt með lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 23.283.552.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

16

30. (1698). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og fór yfir heimildir til lántöku samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.

Á fundi bæjarstjórnar 4. mars sl. var samþykkt að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 330.000.000 en heimild samkvæmt fjárhagsáætlun kr. 800.000.000.

Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra um að leita tilboða í lántöku að fjárhæð allt að kr. 470.000.000 með stækkun á áður útgefnum flokki til lántöku.

Tilboð vegna lánveitinga verða lögð fram til afgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð Garðabæjar

17

27. (1695). fundur

Lögð fram tilboð sem bárust í gatnagerð í Urriðaholti en tilboðin hafa verið yfirfarin.

Loftorka Reykjavík ehf. kr. 88.577.500
Wiium ehf. kr. 82.127.600
Lóðaþjónustan ehf. kr. 82.540.000
Gott verk ehf. kr. 76.389.808

Kostnaðaráætlun hönnuða kr. 84.902.000

Lagt fram minnisblað Eflu um yfirferð tilboða þar sem sérstaklega er gerð grein fyrir upplýsingum um lægstbjóðanda.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að leita samninga við lægstbjóðanda, Gott verk ehf. á grundvelli tilboðsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

18

26. (1694). fundur

Lögð fram eftirfarandi tilboð í endurnýjun gangstétta og lagna við Garðaflöt. Tilboðsfjárhæðir hafa verið yfirfarnar vegna villu í exel-skrá.

K ehf. kr. 112.990.500
Ljósþing ehf. kr. 90.749.461
Rökkvi verktakar ehf. kr. 88.325.750
Steingarður ehf. kr. 115.098.500

Kostnaðaráætlun hönnuða kr. 101.866.000

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að leita samninga við lægstbjóðanda, Rökkva verktaka ehf. á grundvelli tilboðsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

19

26. (1694). fundur

Lögð fram eftirfarandi tilboð sem bárust í gatnagerð í Urriðaholti.

Loftorka Reykjavík ehf. kr. 88.577.500
Wiium ehf. kr. 82.127.600
Lóðaþjónustan ehf. kr. 82.540.000
Gott verk ehf. kr. 76.389.808

Kostnaðaráætlun hönnuða kr. 84.902.000

Tilboðin hafa ekki verið yfirfarin og verður því ekki tekin afstaða til þeirra að svo stöddu.

Bæjarráð Garðabæjar

20

23. (1691). fundur

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir helstu framkvæmdum samkvæmt fjárhagsáætlun og lýsti nánar stöðu þeirra.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

21

22. (1690). fundur

Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir málaflokkayfirliti fyrir tímabilið janúar - apríl 2015.$line$$line$Fram kom hjá fjármálastjóra að kostnaður við fjóra málaflokka væri umfram viðmiðanir fyrir fjóra fyrstu mánuði ársins. Um er að ræða kostnað við félagsþjónustu, æskulýðs-og íþróttamál, umferðar og samgöngumál og hjúkrunarheimilið Ísafold.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

22

8. fundur

Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2015 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. María Grétarsdóttir, situr hjá.$line$$line$Viðauki 1 kr. 60.000.000 Viðhald gatna$line$Viðauki 2 kr. 1.500.000 Framlag samkvæmt lögum um orlof húsmæðra $line$Viðauki 3 kr. 6.000.000 Sjálandsskóli - launakostnaður$line$Viðauki 4 kr. 44.000.000 Framlag til GKG $line$Viðauki 4 kr. 50.000.000 Framlag til golfskála GKG skv. framkvæmdayfirliti fellur niður$line$$line$Ofangreindum viðaukum nr. 1-4 skal mætt með lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 61.500.000.

Bæjarráð Garðabæjar

23

19. (1687). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, og gerði grein fyrir tillögu að viðaukum nr. 1-4 við fjárhagsáætlun 2015.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2015 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.$line$$line$Viðauki 1 kr. 60.000.000 Viðhald gatna$line$Viðauki 2 kr. 1.500.000 Framlag samkvæmt lögum um orlof húsmæðra $line$Viðauki 3 kr. 6.000.000 Sjálandsskóli - launakostnaður$line$Viðauki 4 kr. 44.000.000 Framlag til GKG $line$Viðauki 4 kr. 50.000.000 Framlag til golfskála GKG skv. framkvæmdayfirliti fellur niður$line$$line$Ofangreindum viðaukum nr. 1-4 skal mætt með lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 61.500.000.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

24

12. (1680). fundur

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2015.$line$$line$Styrktarfélag klúbbsins Geysis kr. 100.000$line$Félag eldri borgara í Garðabæ kr. 400.000$line$Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla kr. 150.000$line$Garðakórinn kr. 300.000$line$Álftaneskórinn kr. 100.000$line$Samtök um kvennaathvarf kr. 400.000$line$Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu kr. 100.000$line$Stígamót kr. 150.000$line$Norrænafélagið í Garðabæ kr. 100.000$line$$line$Bæjarráð vísar erindi Garðasóknar vegna sálgæslu og erindi félags heyrnarlausra um styrk til bæjarstjóra.$line$$line$Bæjarráð vísar erindi Skógræktarfélags íslands til afgreiðslu umhverfisnefndar.$line$$line$Bæjarráð telur eigi unnt að vera við erindi Parkinsonsamtakanna um styrk.

Bæjarstjórn Garðabæjar

25

4. fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku að fjárhæð kr. 330.000.000 samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir 2015. Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu.$line$$line$$line$"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð 330.000.000 króna að nafnvirði bréfsins á 3,04% ávöxtunarkröfu sem jafngildir markaðsvirði að fjárhæð 284.525.997 krónum.$line$Bæjarstjórn samþykkir fara þess á leit að að skuldabréfaflokkur með auðkenninu GARD 13 1 og ISIN nr. IS0000022689 verði aukinn um kr. 330.000.000 þ.e. um samsvarandi fjölda eininga en nafnverðseining er kr. 1. Vísað er til heimildar í útgáfusamningi, dags. 8. janúar 2013. Einnig er vísað til útgáfulýsingar dags. 8. janúar 2013. Áður hafa verið gefnar út kr. 1.437.000.000 og verður flokkurinn því að fjárhæð kr. 1.767.000.000 eftir hækkunina. Skuldabréfaflokkur þessi er þegar skráður á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands).$line$Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2015 (2016-2018) sem samþykkt var í bæjarstjórn 4. desember 2014."$line$$line$Tillagan samþykkt með tíu atkvæðum. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

26

9. (1677). fundur

Lögð fram tilboð er bárust í skuldabréfaútboði Garðabæjar vegna lántöku allt að kr. 400.000.000.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að heimila bæjarstjóra að semja um lántöku allt að fjárhæð kr. 330.000.000, verðtryggt með 3,04% vöxtum. Um er að ræða viðbót við áður útgefinn skuldabréfaflokk GARD-13.1. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

27

3. fundur

Bæjarstjórn samþykkir heimild til að leita tilboða í lántöku að fjárhæð allt að kr. 400.000.000, verðtryggt, með stækkun á áður útgefnum skuldabréfaflokki sem skráður er á Verðbréfaþingi Íslands.

Bæjarráð Garðabæjar

28

6 (1674). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og fór yfir heimildir til lántöku samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra um lántöku að fjárhæð allt að kr. 300.000.000 með stækkun á áður útgefnum flokki til lántöku.$line$$line$Tilboð vegna lánveitinga verða lögð fram til afgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð Garðabæjar

29

1 (1669). fundur

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um viðmiðunarfjárhæðir um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts og holræsagjalds elli- og örorkulífeyrisþega.$line$$line$Einstaklingar:$line$Einstaklingar með tekjur árið 2013 allt að kr. 4.500.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. $line$Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 3.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.800.000.$line$$line$Hjón:$line$Hjón með tekjur árið 2013 allt að kr. 5.750.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 12.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.950.000.

Bæjarráð Garðabæjar

30

1 (1669). fundur

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu varðandi búnaðarkaup samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.$line$$line$Bifreiðar og tæki$line$ Gámabifreið 12,0 mkr.$line$ Endurnýjun á bifreið bæjarstjóra 11,0 mkr.$line$ Bifreið fyrir vatnsveitu 6,0 mkr.$line$ Bifreið fyrir þjónustumiðstöð 6,0 mkr$line$ Sláttuvagn og snjótönn 7,5 mkr.$line$$line$Tölvubúnaður$line$ Endurnýjun í skólum 20,0 mkr.$line$ Þróun upplýsingatækni í skólum 5,0 mkr.$line$ Aðrar stofnanir 5,0 mkr.$line$ Ýmislegt 2,5 mkr.$line$$line$Annar búnaður$line$ Búnaður í stofnunum 25,0 mkr.$line$$line$Samtals: 100,0 mkr.

Bæjarráð Garðabæjar

31

48. fundur

Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjastjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

32

48. fundur

Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjastjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

33

46. fundur

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir reglur um fjárhagsaðstoð og sérstakar húsaleigubætur. $line$Tillögur um gjaldskrár lagðar fram og vísað til bæjarstjórnar. $line$$line$Bæjarstjóri fór yfir breytingar á tillögum að framkvæmdum. Minnisblað um breytingar á frumvarpi til fjárhagsáætlunar lagt fram og vísað til bæjarstjórnar.

Fjölskylduráð Garðabæjar

34

8. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1409324, fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015. Félagsmálastjóri kynnir fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs árið 2015. Nefndin ræðir áætlunina.

Bæjarráð Garðabæjar

35

45. fundur

Farið var í heimsóknir í Garðaskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla og íþróttahúsin við Ásgarð og Mýrina.

Bæjarráð Garðabæjar

36

44. fundur

Lagt fram.

Bæjarráð Garðabæjar

37

44. fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars á árinu 2015.$line$$line$"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,66% á tekjur manna á árinu 2015 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 1. mgr. 24. gr. laganna. $line$Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2014 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga. $line$Í frumvarpi til laga um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2015, sem er nú til meðferðar hjá Alþingi, kemur fram að gert er ráð fyrir að ákvæði XVI til bráðabirgða í lögum um tekjustofna sveitarfélaga framlengist um eitt ár og gildi á árinu 2015. Hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvartekjum sveitarfélaga hækkar samkvæmt því úr 0,95% í 0,99%. Verði frumvarpið að lögum áskilur bæjarstjórn Garðabæjar sér rétt til að hækka álagningarhlutfall útsvar um 0,4% eða í 13,70% enda lækkar tekjuskattshlutfall ríkisins samsvarandi.?$line$$line$Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$$line$Farið var í heimsóknir í eftirfarandi stofnanir bæjarins.$line$$line$Sjálandsskóla, Ísafold - hjúkrunarheimili og þjónustumiðstöð"

Leikskólanefnd Garðabæjar

38

4. fundur

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2015

Margrét Björk Svavarsdóttir forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs kynnti helstu áherslur í fjárhagsáætlun ársins 2015. Leikskólar nýta um 31% af því sem rennur til fræðslumála. Gert er ráð fyrir kjarasamningshækkunum á árinu og um 5% hækkun á matarinnkaupum. Að öðru leyti er reksturinn óbreyttur frá þessu ári. Umræður urðu um gjaldskrá leikskóla og þjónustustig leikskólanna.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

39

3. fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri og Margrét Björk Svavarsdóttir forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs mættu á fundinn og fóru yfir helstu áherslur og niðurstöður frumvarps að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2015, eins og það var lagt fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn þann 6. nóvember sl. $line$Farið var einstaka þætti fjárframlags til málaflokks 05-menningarmál í frumvarpinu.$line$Í erindi fjármálastjóra kom fram að síðari umræða um fjárhagsáætlun Garðabæjar 2015 fari fram fimmtudaginn 4. desember 2014.$line$Umræður voru um málið. Formaður beindi því til nefndarinnar að ábendingar og athugasemdir nefndarmanna varðandi málaflokkinn 05-menningarmál í fyrirliggjandi frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2015 skyldu sendar upplýsinga- og menningarfulltrúa til frekari úrvinnslu fyrir síðari umræðu um fjárhagsáætlunina í bæjarstjórn. $line$

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

40

4. fundur

Fjárhagsáætlun lögð fram til kynningar og umræðu

Skólanefnd lýsir yfir ánægju með að fá kynningu sem þessa. $line$Í kjölfarið komu fram skiptar skoðanir á niðurgreiðslu sveitarfélagsins á skólamat.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

41

6. fundur

Tekið fyrir erindi frá Guðjóni Friðrikssyni bæjarritara dags. 28. okt. sl. um umfjöllun hjá fastanefndum á tillögum til fjárhagsáætlunar fyrir árin 2015-2018,deildaryfirlit fyrir 2015, áætlun á málaflokkar fyrir 2015, málaflokkayfirlit fyrir 2015 og framkvæmdaáætlun 2015-2018.

Umhverfisnefnd óskar eftir endurskoðun á framkvæmdaáætlun, þannig að tillaga nefndarinnar um fjárveitingu til uppbyggingar á náttúrutengdum útivistarsvæðum s.s. friðlýstum svæðum komist til framkvæmda.

Bæjarráð Garðabæjar

42

43. fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi vegna íbúafundar um fjárhagsáætlun sem fyrirhugaður er fimmtudaginn 13. nóvember nk.$line$$line$Farið var í heimsóknir í eftirfarandi stofnanir bæjarins. $line$$line$Álftanesskóla$line$Leikskólann Krakkakot$line$Leikskólann Holtakot$line$Íþróttamiðstöðina á Álftanesi

Skipulagsnefnd Garðabæjar

43

17. fundur

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir kafla um Skipulagsmál í Fjárhagsáætlun Garðarbæjar fyrir árið 2015.

Bæjarráð Garðabæjar

44

42. fundur

Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi gögn.$line$$line$Framkvæmdayfirlit 2015 - 2018.$line$Breyting á fjárhæð fasteignaskatts miðað við lækkun á gjaldstigi úr 0,26% í 0,24%.$line$Yfirlit yfir hækkun tekna vegna hækkunar á gjaldskrám leikskóla o.fl. um 5%.$line$Drög að texta í auglýsingu um kynningarfund með íbúum.$line$$line$Bæjarráð vísar framlögðum gögnum til frekari umfjöllunar við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun sem fyrirhuguð er á fundi bæjarstjórnar 6. nóvember 2014.

Bæjarráð Garðabæjar

45

41. fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 og árin 2016 - 2018.$line$$line$Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 eru:$line$$line$$line$Heildartekjur 10.992.431 þkr.$line$Gjöld 10.246.220 þkr.$line$Niðurstaða án fjármagnsliða 746.211 þkr.$line$Fjármunatekjur (gjöld) (573.434) þkr.$line$$line$Rekstrarniðurstaða 172.776 þkr.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013.

Bæjarráð Garðabæjar

46

40. fundur

Bæjarstjóri kynnti drög að tillögu um gjaldstig útsvars og fasteignaskatta og ræddi hugmyndir um breytingar á gjaldskrám. $line$$line$Bæjarstjóri kynnti tillögu að dagskrá vegna heimsókna bæjarráðs í stofnanir í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Bæjarráð Garðabæjar

47

39 (1659). fundur

Fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og lagði fram endurskoðað vinnuferli við gerð fjárhagsáætlunar. Samkvæmt því er gert ráð fyrir að tillaga að fjárhagsáætlun verði lögð fram í bæjarráði 28. október. Fyrri umræða í bæjarstjórn verður 6. nóvember og síðari umræða 4. desember.$line$$line$Fjármálastjóri lagði jafnframt fram drög að áætlun skattekna fyrir árið 2015.

Bæjarráð Garðabæjar

48

36 (1656). fundur

Fjármálastjóri lagði fram og kynnti helstu forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015 ásamt yfirliti yfir ferli við vinnu við fjárhagsáætlun.$line$$line$Samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 skal tillaga að fjárhagsáætlun lögð fyrir bæjarstjórn til fyrri umræðu eigi síðar en 1. nóvember. Fjárhagsáætlun skal síðan afgreidd við síðari umræðu í bæjarstjórn eigi síðar en 15. desember.