Beint í efni

26. (1694). fundur

07.07.2015
Bæjarráð Garðabæjar

26. (1694). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

07.07.2015

Kl. 08:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1507009

01

Bréf lóðarhafa við Gimli við Álftanesveg, dags. 25.06.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1501316

02

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi niðurstöður úttektar á starfsemi leikskólans Sjálands, dags. 30.06.15.

Lagt fram bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi skýrslu um úttekt á starfsemi leikskólans Sjálands en úttektin fór fram í október 2014 á grundvelli 17. gr. laga um leikskóla og 4. og 5. gr. reglugerðar nr. 893/2009 um mat og eftirlit í leikskólum o.fl.

Í niðurstöðum skýrslunnar eru ábendingar og tillögur til umbóta og er óskað eftir að Garðabær leggi fram fyrir 11. sept. n.k. áætlun um hvernig brugðist verði við þeim.

Bæjarráð samþykkir að vísa skýrslunni til umfjöllunar leikskólanefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1507019

03

Greinargerð Samtaka um betri spítala um mögulega staðsetningu nýs spítala.

Lögð fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1502086

04

Fundargerð heilbrigðisnefndar, dags. 30.06.15.

Fundargerðin lögð fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1507032

05

Bréf Alþingis varðandi umsögn um frumvarp til laga um húsnæðisbætur (heildarlög, dags. 03.07.15.

Málsnúmer 1507031

06

Tilkynning frá velferðarráðuneytinu um styrkumsóknir varðandi úttektir á aðgengi fatlaðs fólks.

Málsnúmer 1503196

07

Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fjárhagsáætlunar 2016, dags 29.06.15.

Málsnúmer 1409324

08

Opnun tilboða í endurnýjun gangstétta ofl. við Garðaflöt.

Lögð fram eftirfarandi tilboð í endurnýjun gangstétta og lagna við Garðaflöt. Tilboðsfjárhæðir hafa verið yfirfarnar vegna villu í exel-skrá.

K ehf. kr. 112.990.500

Ljósþing ehf. kr. 90.749.461

Rökkvi verktakar ehf. kr. 88.325.750

Steingarður ehf. kr. 115.098.500

Kostnaðaráætlun hönnuða kr. 101.866.000

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að leita samninga við lægstbjóðanda, Rökkva verktaka ehf. á grundvelli tilboðsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1409324

09

Opnun tilboða í gatnagerða í Urriðaholti.

Lögð fram eftirfarandi tilboð sem bárust í gatnagerð í Urriðaholti.

Loftorka Reykjavík ehf. kr. 88.577.500

Wiium ehf. kr. 82.127.600

Lóðaþjónustan ehf. kr. 82.540.000

Gott verk ehf. kr. 76.389.808

Kostnaðaráætlun hönnuða kr. 84.902.000

Tilboðin hafa ekki verið yfirfarin og verður því ekki tekin afstaða til þeirra að svo stöddu.

Málsnúmer 1507037

10

Bréf Sambands ísl sveitarfélaga varðandi úthlutun úr endurmenntunarsjóði grunnskóla, dags. 02.07.15.

Lagðar fram upplýsingar um úthlutun til Garðabæjar úr endurmenntunarsjóði grunnskóla:

Álftanesskóli kr. 407.000

Flataskóli kr. 407.000

Garðaskóli kr. 407.000

Hofsstaðaskóli kr. 407.000

Sjálandsskóli kr. 407.000

Skóladeild Garðabæjar kr. 1.430.000

Skóladeild Garðabæjar (SSH) kr. 825.000

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1506355

11

Umsókn um styrk til að stunda nám með vinnu.

Bæjarráð samþykkir umsókn Ragnhildar Gunnlaugsdóttur, aðstoðarleikskólastjóra á leikskólanum Ökrum um styrk til að stunda framhaldsnám og nemur styrkurinn 10% afslætti af vikulegri vinnuskyldu.

Málsnúmer 1505291

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar vegna lóðarinnar við Garðatorg 6.

Afgreiðslu frestað.

Málsnúmer 1505044

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi - Espilundur 11.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga vegna umsóknar um leyfi til byggingar sólskála við einbýlishúsið að Espilundi 11, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir, sbr. 1. mgr. sömu greinar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504114

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 51.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 51. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að íbúðum fjölgi um eina eða úr 16 í 17 og að gerðar verði útlitsbreytingar á húsinu ásamt fjölgun bílastæða og bílgeymsla.

Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála.

Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það. Gjaldið nemur kr. 701.249 á íbúð miðað við BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504313

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna Hraungötu 13.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 13. (áður nr. 53). Tillagan gerir ráð fyrir því að íbúðum fjölgi úr 6 í 8 og að breytingar verði gerðar á byggingarreit bílgeymslu.

Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála.

Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það. Gjaldið nemur kr. 701.249 á íbúð miðað við BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi

Fylgiskjöl