Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á skipulagi miðbæjar vegna lóðarinnar við Garðatorg 6.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
38. (1706). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar vegna lóðarinnar við Garðatorg 6, sem gerir ráð fyrir að heimilt verði að hafa íbúðir á 2. og 3. hæð, verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar, efra svæðis sem nær til lóðarinnar Garðatorg 6.
Tillagan gerir ráð fyrir því að á efri hæðum hússins sem er 3 hæðir með kjallara verði einnig leyfilegt að hafa íbúðir ásamt skrifstofurýmum.
Tillagan var í kynningu frá 17. júlí til 28. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
03
27. (1695). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýst verði samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breyting á deiliskipulagi miðbæjar vegna lóðarinnar við Garðatorg. 6. Í tillögunni felst að heimilt verði að hafa íbúðir á 2. og 3. hæð. Varðandi kvöð um bílastæði skal gera ráð fyrir a.m.k. 0,5 stæði á íbúð í kjallara.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
8. fundur
Lögð fram tilllaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar Garðabæjar efra svæðis sem nær til lóðarinna Garðatorg 6 (Lóð D). Tillaga gerir ráð fyrir því að á efri hæðum hússins sem er 3 hæðir með kjallara verði leyfilegt að vera með íbúðir ásamt skrifstofurýmum eða opinberri stofnun eins og gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Ekki verði skylt að vera með bílageymslur í kjallara en gert er ráð fyrir að íbúar hússins nýti sér bifreiðarstæði á lóðinni Garðatorg 7 B (lóð C) torg og bílakjallari. Byggingarmagn verði óbreytt.
Skipulagsnefnd leggur til að gert verði ráð fyrir bílakjallara undir byggingunni sem tengist bílakjallara að Garðatorgi 7B. Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga með ofangreindri breytingu.