Umsókn um byggingarleyfi - Espilundur 11
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
12. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir garðhýsi að Espilundi 11 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr. Skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd gerir því ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfið.
Bæjarráð Garðabæjar
02
26. (1694). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga vegna umsóknar um leyfi til byggingar sólskála við einbýlishúsið að Espilundi 11, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir, sbr. 1. mgr. sömu greinar.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
8. fundur
Lögð fram fyrirspurn um tillögu að sólskýli við íbúðarhúsið að Espilundi 11. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Lundum og því verður að leggja fram byggingarleyfisumsókn. Skipulagsnefnd heimilar grenndarkynningu tillögu sem er í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga.