Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 13

Málsnúmer 1504313

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

38. (1706). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 13, sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 6 í 8, verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 701.249 á íbúð m.v. BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

12. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 6 í 8. Bílastæðum fjölgar á lóð og í bílageymslu.

Tillagan var í kynningu frá 17. júlí til 28. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

03

26. (1694). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 13. (áður nr. 53). Tillagan gerir ráð fyrir því að íbúðum fjölgi úr 6 í 8 og að breytingar verði gerðar á byggingarreit bílgeymslu.

Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála.
Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það. Gjaldið nemur kr. 701.249 á íbúð miðað við BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

9. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Hraungata 13(áður nr 53). Tillagan gerir ráð fyrir því að íbúðum fjölgi úr 6 í 8 og að breytingar verði á byggingarreit bílageymslu og á fjölda bílastæða á lóð. Einnig er gert ráð fyrir því að hæðarkóti breytist og húshlutar verði í sömu hæð. Hluti af þaki verði með þakhalla á bilinu 0-10 gráður. Viðmiðunarbyggingarmagn eykst lítillega. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Hraungata 13 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Tillögunni og umsögn deiliskipulagshöfundar er vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

6. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um hvort unnt sé að fjölga íbúðum um 2, þ.e. úr 6 í 8, að ekki verði stöllun á milli álmanna, að byggingarreitur breytist og að þakhalli verði 0-10 gráður. Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn deiliskipulagshöfundar um tillöguna áður en hægt verður að taka afstöðu til málsins.