Beint í efni

9. fundur

02.07.2015
Skipulagsnefnd Garðabæjar

9. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

02.07.2015

Kl. 08:00 - 10:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Hallfríður Erla Guðjónsdóttir - varamaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1506095

01

Sandskeiðslína 1 og Hamraneslínur - kynning Landsnets.

Fulltrúai Landnets, Þorarinn Bjarnason og fulltrúi verkfræðistofunnar Eflu Ólafur Árnason kynntu áform um lagningu Sandskeiðslínu 1 og Hamraneslínur. Forsendur eru til staðar í gildandi aðalskipulagi Garðabæjar.

Málsnúmer 1302203

02

Kirkjubrú 1, dsk

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Kirkjubrúar 1 að lokinni kynningu ásamt athugasemdum sem borist hafa.

Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1503396

03

Kirkjubrú (Kirkjubrekka/Tjarnarbrekka), dsk breyting.

Lagðar fram tillögur að breytingu á deiliskipulagi Brekku og deiliskipulagi Kirkjubrúar að lokinni kynningu ásamt innsendum athugasemdum. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1504313

04

Hraungata 13 - deiliskipulags breyting.

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Hraungata 13(áður nr 53). Tillagan gerir ráð fyrir því að íbúðum fjölgi úr 6 í 8 og að breytingar verði á byggingarreit bílageymslu og á fjölda bílastæða á lóð. Einnig er gert ráð fyrir því að hæðarkóti breytist og húshlutar verði í sömu hæð. Hluti af þaki verði með þakhalla á bilinu 0-10 gráður. Viðmiðunarbyggingarmagn eykst lítillega. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1302243

05

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Aðalskipulagráðgjafar, Árni Ólafsson, Yngvi Þór Loftsson, Bergþóra Kristinsdóttir og Ólafur Árnason lögðu fram grunn að kostagreiningu ýmissa þátta aðalskipulagsvinnunnar.