Beint í efni

Kirkjubrú (Kirkjubrekka/Tjarnarbrekka), dsk breyting.

Málsnúmer 1503396

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

9. fundur

Lagðar fram tillögur að breytingu á deiliskipulagi Brekku og deiliskipulagi Kirkjubrúar að lokinni kynningu ásamt innsendum athugasemdum. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

6. fundur

Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum tillögu skipulagsstjóra um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kirkjubrúa vegna Kirkjubrekku og Tjarnarbrekku og deiliskipulagi Brekku samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í tillögunni felst breyting á gatnamótum Brekkulands og Tjarnarbrekku, breyting á stíg frá Tjarnarbrekku og að stígur frá Tjarnarbrekku til suðurs verði felldur út. Þá gerir tillagan ráð fyrir að lóðin við Tjarnarbrekku 15 skerðist lítillega.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir og Halldór Jörgensson sitja hjá við afgreiðslu málsins.$line$

Bæjarráð Garðabæjar

03

13. (1681). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsstjóra um að auglýsa tillögu breytingu á deiliskipulagi Kirkjubrúa vegna Kirkjubrekku og Tjarnarbrekku og deiliskipulagi Brekku samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í tillögunni felst breyting á gatnamótum Brekkulands og Tjarnarbrekku, breyting á stíg frá Tjarnarbrekku og að stígur frá Tjarnarbrekku til suðurs verði felldur út. Þá gerir tillagan ráð fyrir að lóðin við Tjarnarbrekku 15 skerðist lítillega.$line$Tillagan tengist tillögu að nýju deiliskipulagi Kirkjubrúar 1 sem samþykkt var að auglýsa til kynningar á fundi bæjarstjórnar 5. mars 2015.

Fylgiskjöl