Beint í efni

13. (1681). fundur

31.03.2015
Bæjarráð Garðabæjar

13. (1681). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

31.03.2015

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1412332

01

Ársreikningur Garðabæjar 2014 (Endurskoðandi mætir á fundinn)

Auðunn Guðjónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mættu á fund bæjarráðs.$line$$line$Auðunn Guðjónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2014, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.$line$$line$Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2014 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. $line$$line$Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 16. apríl 2015.

Málsnúmer 1503377

02

Bréf Alþjóðaskólans á Íslandi varðandi samþykki til að bæta við 8. bekk í skólann, dags. 23.03.15.

Á fundi bæjarráðs 13. nóvember 2012 samþykkti Garðabær fyrir sitt leyti stofnun Alþjóðaskólans á Íslandi, samkvæmt 43. gr. grunnskólalaga nr. 144/2008, en skólinn er með starfsemi sína í Garðabæ.$line$$line$Bæjarráð staðfestir að sú samþykkt gildir komi til þess að skólinn bæti við 8. - 10. bekk og mun fjárframlag fylgja vegna nemendafjölgunar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503363

03

Endurnýjun samnings um Kveikjuna.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti aðild að samstarfssamningi með Hafnarfjarðarbæ og Nýsköpunarmiðstöð Íslands um frumkvöðlasetrið Kveikjuna.

Málsnúmer 1502355

04

Tillaga leikskólanefndar um skilyrði fyrir starfsleyfi dagforeldra

Bæjarráð samþykkir tillögu leikskólanefndar um skilyrði sem sett eru fyrir veitingu starfsleyfis til dagforeldra í Garðabæ.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503316

05

Tillaga Bjartrar framtíðar um þarfa- og kostnaðargreiningu byggingar fjölnota íþróttahúss, dags. 19.03.15.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra láta vinna þarfa- og kostnaðargreiningu vegna byggingar fjölnota íþróttahúss. $line$ $line$Bæjarráð vísar til íþrótta- og tómstundaráðs að vinna að gerð forsendna vegna þarfagreiningar fyrir starfsemi hússins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503011

06

Tillögur skólanefndar um úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla í Garðabæ.

Alls bárust 38 umsóknir um styrki úr Þróunarsjóði grunnskóla. $line$$line$Skólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 19.960.000 úr sjóðnum til 22 verkefna.$line$$line$Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um Þróunarsjóð grunnskóla.

Málsnúmer 1503358

07

Ársreikningur Skátafélagsins Vífils árið 2014 ásamt ársskýrslu og starfsáætlun.

Ársreikningur ásamt fylgigögnum lagður fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1410403

08

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum á vef Garðabæjar.

Bæjarritari gerði grein fyrir reglum um birtingu gagna með fundargerðum á vef Garðabæjar og lagði til breytingu á 5. tl., sem hljóðar svo:$line$$line$?Í þeim tilvikum sem óskað er eftir gögnum er varða tiltekið mál sem ekki hafa verið lögð fram á fundi eða fylgt fundarboði skal beiðni um slíkt berast bæjarskrifstofum. (gardabaer@gardabaer.is).?$line$$line$Bæjarráð samþykkir reglurnar til að gilda um birtinga gagna með fundargerðum en fyrst um sinn skulu reglurnar einungis taka til birtingar gagna með fundargerðum bæjarráðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503390

09

Tillaga bæjarfulltrúa Fólksins í bænum og Samfylkingar um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndum.

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503396

10

Bréf skipulagsstjóra varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna Kirkjubrúar og Brekku (Kirkjubrekka/Tjarnarbrekka), dags. 27.03.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsstjóra um að auglýsa tillögu breytingu á deiliskipulagi Kirkjubrúa vegna Kirkjubrekku og Tjarnarbrekku og deiliskipulagi Brekku samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í tillögunni felst breyting á gatnamótum Brekkulands og Tjarnarbrekku, breyting á stíg frá Tjarnarbrekku og að stígur frá Tjarnarbrekku til suðurs verði felldur út. Þá gerir tillagan ráð fyrir að lóðin við Tjarnarbrekku 15 skerðist lítillega.$line$Tillagan tengist tillögu að nýju deiliskipulagi Kirkjubrúar 1 sem samþykkt var að auglýsa til kynningar á fundi bæjarstjórnar 5. mars 2015.

Fylgiskjöl