Kostnaðargreining vegna byggingar fjölnota íþróttahúss
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
19. (1687). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, og gerði grein fyrir frumskoðun á áætluðum áhrifum á fjárhag Garðabæjar komi til byggingar fjölnota íþróttahúss.$line$$line$Fjármálastjóri lagði fram yfirlit þar sem áhrifin eru sýnd miðað við mismunandi stærð af húsum þar sem áætlaður kostnaður er frá 650 mkr til 1.850 mkr.$line$$line$Bæjarstjóri upplýsti að á vegum íþróttafulltrúa er verið að vinna að samantekt varðandi möguleika á fjölbreyttri notkun fjölnota íþróttahúss.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
9. fundur
KJ kynnti niðurstöður nefndar sem skilaði áliti sínu í september 2014. Gögn varðandi þetta liggja fyrir. KJ var falið að taka saman stutta greinargerð um þarfir mismunandi hópa sem gætu nýtt sér fjölnota íþróttahús og hvernig aðstaða þurfti þá að vera í húsinu.
Bæjarráð Garðabæjar
03
13. (1681). fundur
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra láta vinna þarfa- og kostnaðargreiningu vegna byggingar fjölnota íþróttahúss. $line$ $line$Bæjarráð vísar til íþrótta- og tómstundaráðs að vinna að gerð forsendna vegna þarfagreiningar fyrir starfsemi hússins.