Beint í efni

9. fundur

15.04.2015
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

9. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

15.04.2015

Kl. 17:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
  • Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
  • Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1410456

01

Aðsóknartölur í sundlaugar Garðabæjar

KJ kynnti aðsóknartölur í sundlaugar Garðabæjar og samanburð þeirra við aðsóknartölur annarra sundlauga á höfuðborgarsvæðinu. Fram kom að aukning hefur verið milli ára á aðsókn í Ásgarðslaug en einnig í Álftaneslaug. Mikil aukning varð í kennslustundafjölda í sundkennslu grunnskólanna vegna fjölgunar nemenda, en einnig þar sem skólarnir eru nú farnir að fullnægja skyldu sinni gagnvart tímafjölda. Fyrirséð er að þröngt verður um sundkennslu í Ásgarðslaug næsta skólaár og líklegt að loka þurfi oftar á notkun almennings, jafnvel alveg, meðan á sundkennslunni stendur.$line$Rætt um kosti þess að hafa sérstaka kennslusundlaug fyrir Flataskóla og Garðaskóla.$line$Mikil viðhaldsþörf er orðin á lauginni í Ásgarði skv. úttekt sem gerð var 2014 af verkfræðistofunni Strendingi ehf.$line$Talið er að ef auka eigi hilli almennings á Ásgarðslaug enn frekar þurfi að gera á henna miklar endurbætur.

Málsnúmer 1503308

02

Endurbætur á keppnisvelli Sóta

Kynnt voru áform Sóta um endurbætur á reiðvelli sínum og umhverfi hans að upphæð 11,5 milljónir.

Málsnúmer 1503316

03

Tillaga um þarfa- og kostnaðargreiningu byggingar fjölnota íþróttahúss

KJ kynnti niðurstöður nefndar sem skilaði áliti sínu í september 2014. Gögn varðandi þetta liggja fyrir. KJ var falið að taka saman stutta greinargerð um þarfir mismunandi hópa sem gætu nýtt sér fjölnota íþróttahús og hvernig aðstaða þurfti þá að vera í húsinu.

Málsnúmer 1504041

04

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000,- til Freydísar Höllu Einarsdóttur v/FIS móts í Noregi 26. feb 2015

Ferðastyrkur kr. 20.000,- samþykktur til Freydísar Höllu Einarsdóttur v/FIS móts í Noregi 26. feb 2015

Málsnúmer 1504040

05

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000,- til Freydísar Höllu Einarsdóttur v/FIS móts í Noregi 8. apríl 2015

Ferðastyrkur kr. 20.000,- samþykktur til Freydísar Höllu Einarsdóttur v/FIS móts í Noregi 8. apríl 2015.

Málsnúmer 1502323

06

Önnur mál ÍTG 2015

a) ...$line$b) ...$line$c) ...

a) KJ kynnti upplýsingar um fjölda barna í Garðabæ eftir árgöngum sem nýttu sér Hvatapeninga árið 2015. Heildarskýrsla um hvar og hvernig frístundastyrkurinn nýtist verður birtur á næsta fundi.$line$b) Næsti fundur ÍTG er áætlaður miðvikudaginn 20. maí n.k.