Beint í efni

Aðsóknartölur í sundlaugar Garðabæjar

Málsnúmer 1410456

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

9. fundur

KJ kynnti aðsóknartölur í sundlaugar Garðabæjar og samanburð þeirra við aðsóknartölur annarra sundlauga á höfuðborgarsvæðinu. Fram kom að aukning hefur verið milli ára á aðsókn í Ásgarðslaug en einnig í Álftaneslaug. Mikil aukning varð í kennslustundafjölda í sundkennslu grunnskólanna vegna fjölgunar nemenda, en einnig þar sem skólarnir eru nú farnir að fullnægja skyldu sinni gagnvart tímafjölda. Fyrirséð er að þröngt verður um sundkennslu í Ásgarðslaug næsta skólaár og líklegt að loka þurfi oftar á notkun almennings, jafnvel alveg, meðan á sundkennslunni stendur.$line$Rætt um kosti þess að hafa sérstaka kennslusundlaug fyrir Flataskóla og Garðaskóla.$line$Mikil viðhaldsþörf er orðin á lauginni í Ásgarði skv. úttekt sem gerð var 2014 af verkfræðistofunni Strendingi ehf.$line$Talið er að ef auka eigi hilli almennings á Ásgarðslaug enn frekar þurfi að gera á henna miklar endurbætur.

Bæjarráð Garðabæjar

02

42. fundur

Lögð fram.$line$$line$Bæjarráð lýsir yfir ánægju með gerð skýrslu um aðsókn í sundlaugar Garðabæjar og beinir því til íþrótta- og tómstundaráðs að taka til umfjöllunar með hvað hætti hægt er að auka aðsóknina enn frekar.