42. fundur
42. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
04.11.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Skýrsla um aðsókn í sundlaugar Garðabæjar, dags. 28.10.14.
Lögð fram.$line$$line$Bæjarráð lýsir yfir ánægju með gerð skýrslu um aðsókn í sundlaugar Garðabæjar og beinir því til íþrótta- og tómstundaráðs að taka til umfjöllunar með hvað hætti hægt er að auka aðsóknina enn frekar.
02
Bréf Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands varðandi ágóðahlutagreiðslu 2014, dags. 24.10.14.
Lagt fram bréf Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands, þar sem fram kemur að ágóðahlutagreiðsla til Garðabæjar árið 2014 nemur kr. 1.810.000.
03
Bréf Útilífsmiðstöðvar skáta Úlfljótsvatni varðandi beiðni um stuðning vegna útilífsmiðstöðvarinnar sumarið 2015, dags. 29.10.14.
Í bréfinu er farið fram á stuðning við útilífsmiðstöð skáta við Úlfljótsvatn í formi afnota af sumarstarfsmönnum 2015 launuðum af Garðabæ.$line$$line$Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við útfærslu á sumaratvinnuátaki ungmenna samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.
04
Bréf Útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni varðandi samstarf um útivistar- og náttúrukennslu, ódags.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skólanefndar.
05
Bréf Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla varðandi styrk vegna fræðslufundar, mótt. 21.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Ásbúð og Holtsbúð, dags. 15.10.14.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 1. júlí sl. tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á deiliskipulagi fyrir Ásbúð og Holtsbúð samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010..$line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá gerð sérstakrar lýsingar samkvæmt 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda liggja allar meginforsendur skipulagsins fyrir í gildandi aðalskipulagi.
07
Bréf landeigenda Arnarneslands varðandi deiliskipulag Arnarnesháls (norðurhluti), dags. 20.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og felur honum að ræða við landeigendur.
08
Bréf Ungmennafélags Álftaness varðandi endurskoðun samnings um rekstrarstyrk, dags. 28.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
09
Bréf Veru Ráðgjöf ehf. varðandi þátttöku Garðabæjar í verkefninu Heilsueflandi samfélag, dags. 23.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs og mannréttinda- og forvarnanefndar.
10
Bréf íþróttafulltrúa varðandi framkvæmdir við Mýrina 2015, dags. 30.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
11
Skýrsla um minnkandi kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum 2014 unnin fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga og innanríkisráðuneytið, dags. í okt. 2014.
Bæjarráð vísar skýrslunni til kynningar ungmennaráðs og mannréttinda- og forvarnanefndar.
12
Bréf Garðakórsins varðandi styrk vegna starfsársins 2015, dags. 28.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
13
Bréf Álftaneskórsins varðandi styrk vegna starfsársins 2014-2015, dags. 27.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
14
Greinargerð Laufeyjar Sverrisdóttur varðandi ferð á friðarráðstefnu Youth in action 2014, dags. 02.1014.
Lögð fram.
15
Tillaga Fólksins í bænum varðandi könnun á möguleikum á hagræðingu í rekstri grunnskóla, dags. 30.10.14.
Bæjarráð vísar tillögunni til fræðslu- og menningarsviðs í tengslum við vinnu við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
16
Umsókn um byggingarleyfi - Kinnargata 11
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar parhúss við Kinnargötu 11.
17
Umsókn um byggingarleyfi - Kinnargata 13
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar parhúss við Kinnargötu 13.
18
Bréf Dalsness ehf. varðandi byggð á lóð Hrauntungu við Álftanesveg, dags. 27.10.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
19
Yfirlit Fjársýslu ríkisins um uppgjör á staðgreiðslu til sveitarfélaga eftir álagningu útsvars 2014 vegna tekna 2013, dags. 28.08.14.
Lagt fram.
20
Bréf Sorpu bs. varðandi rekstraráætlun 2015-2019, dags. 29.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
21
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015.
Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi gögn.$line$$line$Framkvæmdayfirlit 2015 - 2018.$line$Breyting á fjárhæð fasteignaskatts miðað við lækkun á gjaldstigi úr 0,26% í 0,24%.$line$Yfirlit yfir hækkun tekna vegna hækkunar á gjaldskrám leikskóla o.fl. um 5%.$line$Drög að texta í auglýsingu um kynningarfund með íbúum.$line$$line$Bæjarráð vísar framlögðum gögnum til frekari umfjöllunar við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun sem fyrirhuguð er á fundi bæjarstjórnar 6. nóvember 2014.