Beint í efni

Önnur mál ÍTG 2015

Málsnúmer 1502323

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

15. fundur

Næsti fundur ÍTG verður fimmtudaginn 7. janúar kl. 17:00.
Febrúarfundur ÍTG verður haldinn í húsnæði Vífils miðvikudaginn 10. febrúar kl. 17:00

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

14. fundur

a.
b.
c.

Fundarmenn gengu um Ásgarð og kynntu sér þær úrbætur sem gerðar hafa verið á húsnæði í elsta hlutanum og fimleikasalnum auk þess sem farið var yfir viðhaldsþörf í sundlaug og körfuboltasal.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

13. fundur

a.
b.
c.

Fram kom hjá formanni að verið væri að vinna úttekt af hálfu tæknisviðs bæjarins á sparkvöllum og æfingavöllum með gúmmíkurli. Einnig kom fram að KSÍ væri að fara yfir málið almennt þar sem fjöldi sparkvalla sem byggðir hafa verið að þeirra frumkvæði um allt land eru nú komnir að endurnýjun.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

12. fundur

a. Fundartími ÍTG
b. Opnunartími Álftaneslaugar

a. Fundartími ÍTG verður á miðvikudögum þriðju viku hvers mánaðar kl. 17:00 Næsti fundur er þó áætlaður 14. október.

b. ÍTG samþykkir tillögu íþróttafulltrúa um vetraropnun Álftaneslaugar. Opnunartími Álftaneslaugar frá 1.október 2015 til 30. apríl 2016 verði 06:30 til 20:30 virka daga (var til 21:00) og 10:00 til 18:00 laugardaga og sunnudaga (var 09:00-19:00). Athugað verði með lengri sumaropnunartíma um helgar frá 7. maí til 1. september.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

05

11. fundur

Farið var yfir helstu verkefni ÍTG á næstu mánuðum:
Endurskoðun reglugerða vegna Hvatapeninga, íþróttamanns ársins ofl.
Vinna áfram að samþættingu skóla og frítíma á yngsta stigi og gera áætlun um kostnað við verkefnið.
Fylgja eftir viðhalds- og framkvæmdamálum við íþrótta- og tómstundamannvirki í Garðabæ.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

06

10. fundur

a) ...$line$b) ...$line$c) ...

a) Formaður sagði frá heimsókn sinni í Klakann, félagsmiðstöð í Sjálandsskóla.$line$b) Rósanna tilkynnti að hún væri á förum til Danmerkur í framhaldsnám og myndi því ekki mæta á fleiri fundi ráðsins. Henni var þakkað samstarfið. Tilkynnt verður um eftirmann hennar í haust.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

07

9. fundur

a) ...$line$b) ...$line$c) ...

a) KJ kynnti upplýsingar um fjölda barna í Garðabæ eftir árgöngum sem nýttu sér Hvatapeninga árið 2015. Heildarskýrsla um hvar og hvernig frístundastyrkurinn nýtist verður birtur á næsta fundi.$line$b) Næsti fundur ÍTG er áætlaður miðvikudaginn 20. maí n.k.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

08

8. fundur

a) ....$line$b) ....$line$c) ....

Rætt var um með hvaða hætti hægt væri að minnast þess að 100 ár eru frá því konur á Íslandi fengu kosningarétt.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

09

7. fundur

a. Íþróttafulltrúa var falið að kanna kostnað við akstur Frísundabíls yfir sumarmánuðina með það fyrir augum að tengja íþróttasvæðin Breiðumýri, Ásgarð og GKG með viðkomu í skátaheimilunum hjá Svönum og Vífli.$line$b. Íþróttafulltrúa var falið að boða til fundar um samþættingu íþrótta- og tómstundastarfs yngstu iðkenda og skólastarfs. Að því máli þurfa að koma fulltrúar íþróttafélaga, skólastjórar grunnskólanna og yfirvöld menntamála í Garðabæ.