Beint í efni

10. fundur

27.05.2015
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

10. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

27.05.2015

Kl. 17:00 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
  • Sigurður Bjarnason - aðalmaður
  • Rósanna Andrésdóttir - aðalmaður
  • Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1505051

01

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000,- Frosti Hlynsson kt. 020899-3019, FSÍ NM unglinga í Helsinki 22.maí 2015

Samþykktur ferðastyrkur kr. 20.000,- Frosti Hlynsson kt. 020899-3019, FSÍ NM unglinga í Helsinki 22.maí 2015

Málsnúmer 1504041

02

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000,- til Freydísar Höllu Einarsdóttur v/FIS móts í Noregi 26. feb 2015

Samþykktur ferðastyrkur kr. 20.000,- til Freydísar Höllu Einarsdóttur v/FIS móts í Noregi 26. feb 2015

Málsnúmer 1504040

03

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000,- til Freydísar Höllu Einarsdóttur v/FIS móts í Noregi 8. apríl 2015

Samþykktur ferðastyrkur kr. 20.000,- til Freydísar Höllu Einarsdóttur v/FIS móts í Noregi 8. apríl 2015

Málsnúmer 1503244

04

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000,- til Margrétar Jóhannsdóttur TBR A-landslið í badminton, Sudirman Cup Heimsmót í Kína 6.-17.maí 2015

Samþykktur ferðastyrkur kr. 20.000,- til Margrétar Jóhannsdóttur TBR A-landslið í badminton, Sudirman Cup Heimsmót í Kína 6.-17.maí 2015

Málsnúmer 1505071

05

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr.20.000,- til Egils Agnars Októssonar Stjörnunni, KKÍ U-16, NM í Svíþjóð 12.maí 2015

Samþykktur ferðastyrkur kr.20.000,- til Egils Agnars Októssonar Stjörnunni, KKÍ U-16, NM í Svíþjóð 12.maí 2015

Málsnúmer 1504219

06

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr 20.000,- til Róberts Karls Hlöðverssonar Stjörnunni vegna BLÍ A-landslið til Færeyja 22-25.maí 2015

Samþykktur ferðastyrkur kr 20.000,- til Róberts Karls Hlöðverssonar Stjörnunni vegna BLÍ A-landslið til Færeyja 22-25.maí 2015

Málsnúmer 1502447

07

Bygging fjölnota íþróttahúss

Áhugahópur innan knattspyrnudeildar Stjörnunnar kynnir hugmyndir sýnar og sjónarmið.

Fulltrúar áhugahóps innan knattspyrnudeildar Stjörnunnar og málsvarar aðalstjórnar Stjörnunnar um byggingu fjölnota íþróttahúss á Ásgarðssvæðinu kynnti hugmyndir sínar og sjónarmið. Lagði hópurinn áherslu á að byggt yrði á Ásgarðssvæðinu fjölnota íþróttahús þó lofthæð fullnægði ekki kröfum keppnishúss. Hópurinn gerði grein fyrir þeirri skoðun sinni að stórt hús myndi fullnægja þörfum iðkenda íþrótta og almennrar hreyfingar best og að engar málamiðlanir um að byggja minna kæmu til greina, slíkt þjónaði ekki þeirri þörf sem húsið ætti að mæta.$line$Umræða um málið fór fram. Áfram verður unnið að málinu.

Málsnúmer 1505166

08

Umsókn fyrir 19. júní sjóð

Umsókn Erlu Ásgeirsdóttur skíðakonu um styrk úr 19. júnísjóð Garðabæjar.

Ein umsókn lá fyrir. Erla Ásgeirsdóttir skíðakona hlýtur styrk úr 19. júnísjóði Garðabæjar árið 2015 að upphæð 200.000,- krónur. $line$Markmiðið með styrkveitingunni er að gera Erlu kleift að halda áfram afreksáætlun sinni og komast til æfinga við bestu aðstæður á undirbúningstímabili skíðamanna nú í haust. $line$Styrkurinn verður afhentur við lok Kvennahlaupsins í Garðabæ laugardaginn 13. júní nk.

Málsnúmer 1504212

09

Notkun hvatapeninga á námskeið ADHD samtakanna

Ósk ADHD samtakanna um að þátttakendur á námskeiðum þeirra njóti Hvatapeninga.

ÍTG bendir á að viðmið um lágmarks lengd styrkhæfra námskeiða byggi á rannsóknum á högum og líðan íslenskra ungmenna um gildi skipulags starfs, sem nái yfir að minnsta kosti 10 vikur, undir leiðsögn hæfra einstaklinga. Ráðið vill ekki víkja frá þeirri reglu en bendir ADHD samtökunum á að aðlaga námskeið sitt að þessu. Flest sveitarfélög landsins sem útdeila slíkum frístundastyrkjum gera þessa kröfu um lengd námskeiða og byggja öll á þessum sömu niðurstöðum.

Málsnúmer 1505200

10

KFG styrkur 2015

Styrkumsókn KFG vegan starfsemi sinnar árið 2015.$line$Undanfarin ár hefur styrkurinn verið 500.000,- kr. og rétt dugað fyrir sumarþjálfuninni.

Samþykkt var að greiða styrk til KFG að upphæð 500.000,- kr. fyrir árið 2015 að fengnum starfsskýrslum og reikningum ársins 2014.

Málsnúmer 1505220

11

Umsókn um ferðastyrk á alheimsmót skáta

Umsókn frá skátafélaginu Vífli um ferðastyrk til 11 skáta vegna ferðar til Japan á Jamboree eða Alheimsmót skáta í júlí 2015.

Samþykkt var að styrkja Skátafélagið Vífil um 220.000,- kr. vegna ferðar 11 skáta til Japan á Jamboree eða Alheimsmót skáta í júlí 2015.$line$Rósanna lýsti sig vanhæfa og tók ekki þátt í umræðum.

Málsnúmer 1505218

12

Gestakort Reykjavíkur

Kynning á drögum að samkomulagi um þátttöku sundlauga Garðabæjar í Gestakorti Reykjavíkur.

ÍTG leggur til að Garðabær gerist aðili að Gestakorti Reykjavíkur sem er hluti af markaðssetningu höfuðborgarsvæðisins til erlendra gesta. Slíkt samræmist hugmyndum um að kynna sundlaugarnar og söfn Garðabæjar betur.

Málsnúmer 1502323

13

Önnur mál ÍTG 2015

a) ...$line$b) ...$line$c) ...

a) Formaður sagði frá heimsókn sinni í Klakann, félagsmiðstöð í Sjálandsskóla.$line$b) Rósanna tilkynnti að hún væri á förum til Danmerkur í framhaldsnám og myndi því ekki mæta á fleiri fundi ráðsins. Henni var þakkað samstarfið. Tilkynnt verður um eftirmann hennar í haust.