Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs um tillögu að styrkja KFG árið 2016 og gerð samstarfssamnings.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
19. (1736). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu íþrótta- og tómstundaráðs að veita Knattspyrnufélagi Garðabæjar (KFG) styrk að fjárhæð kr. 700.000 og jafnframt að gera samstarfssamning fyrir árin 2016 og 2017.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
20. fundur
Drög að samstarfssamningi við KFG til 2017
ÍTG samþykkir að leggja til við bæjarráð Garðabæjar að veita Knattspyrnufélagi KFG styrk að upphæð kr. 700.000,- fyrir árið 2016. Jafnframt er lagt til að gerður verði samstarfssamningur við félagið með sömu upphæð út starfsárið 2017. Fram hefur komið að KFG hefur tekið að sér lið Skínanda sem áður var undir Stjörnunni.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
10. fundur
Styrkumsókn KFG vegan starfsemi sinnar árið 2015.$line$Undanfarin ár hefur styrkurinn verið 500.000,- kr. og rétt dugað fyrir sumarþjálfuninni.
Samþykkt var að greiða styrk til KFG að upphæð 500.000,- kr. fyrir árið 2015 að fengnum starfsskýrslum og reikningum ársins 2014.