20. fundur
20. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
18.05.2016
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Tómas Björnsson - aðalmaður
- Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
- Hanna Lilja Jóhannsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1605010
01
Umsókn fyrir 19. júní
Stelpugolf GKG 16. maí 2016
Samþykkt var á fundi ÍTG 18. maí 2016 að styrkja umsækjendur um kr. 100.000,-
Formleg afhending styrksins fer fram við setningu 17. júníhátíðarhaldanna kl. 10:00 við grunnskólann á Álftanesi.
Málsnúmer 1605164
02
Umsókn fyrir 19. júní
Freydís Halla Einarsdóttir - afreksáætlun
Samþykkt var á fundi ÍTG 18. maí 2016 að styrkja umsækjendur um kr. 200.000,-
Formleg afhending styrksins fer fram við setningu 17. júníhátíðarhaldanna kl. 10:00 við grunnskólann á Álftanesi.
Málsnúmer 1605166
03
Umsókn fyrir 19. júní
Stjarnan - Stelpur í körfubolta - brú milli flokka
Samþykkt var á fundi ÍTG 18. maí 2016 að styrkja umsækjendur um kr. 250.000,-
Formleg afhending styrksins fer fram við setningu 17. júníhátíðarhaldanna kl. 10:00 við grunnskólann á Álftanesi.
Málsnúmer 1604185
04
EM kvenna í golfi á Urriðavelli
Umsókn Odds vegna EM kvenna 2016
ÍTG samþykkir að leggja til við bæjarráð Garðabæjar að veita Golfklúbbnum Oddi fjárstyrk að upphæð kr. 350.000,- vegna undirbúnings við framkvæmd EM kvenna í golfi 2016.
Málsnúmer 1505200
05
KFG styrkur
Drög að samstarfssamningi við KFG til 2017
ÍTG samþykkir að leggja til við bæjarráð Garðabæjar að veita Knattspyrnufélagi KFG styrk að upphæð kr. 700.000,- fyrir árið 2016. Jafnframt er lagt til að gerður verði samstarfssamningur við félagið með sömu upphæð út starfsárið 2017. Fram hefur komið að KFG hefur tekið að sér lið Skínanda sem áður var undir Stjörnunni.
Málsnúmer 1604231
06
Styrkumsókn skokkhóps Umf. Álftaness
ÍTG samþykkir að leggja til við bæjarráð Garðabæjar að veita UMFÁ styrk að upphæð kr. 200.000,- til að efla starf Skokkhóps Álftaness. Aðeins er um einsskiptis styrk að ræða til að koma starfinu í gang. Skilyrði styrkveitingar er að félagið skili fjárhagsáætlun varðandi skokkhópinn þannig að rekstur hans standi undir sér. Íþróttafulltrúa Garðabæjar er falið að fylgja málinu eftir.
Málsnúmer 1605177
07
Erindi - Stjarnan fimleikaáhöld
Erindinu vísað til bæjarráðs og næstu fjárhagsáætlunar bæjarins.
Málsnúmer 1602187
08
Önnur mál 2016
a) ...
b) ...
a. Farið var yfir drög að dagskráratriðum 17. júníhátíðarhalda í Garðabæ sem eru í umsjá Vífils. Formaður ÍTG setur dagskrána og afhendir styrki úr 19. júnísjóði Garðabæjar.
b. Upplýst var að útboð er í gangi vegna endurbóta á yfirborði sparkvalla og æfingavallar 50x70m á Ásgarðssvæðinu. Einnig er í undirbúningi breytingar og lagfæring á æfingavelli austan Samsungvallar.
c. Formaður upplýsti um að unnið væri að gerð "apps" fyrir göngu- og hjólaleiðir auk söguslóða í bæjarlandinu.